fasteignasölur.is
Hraunbær 192
1 af 12

Um eignina

Lind fasteignasala og Erla Dröfn löggiltur fasteignasali kynna:  vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Hraunbæ 192.. Íbúðin er skráð alls 88 fm., þar af er geymsla 4,6 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Erla Dröfn löggiltur fasteignasali í s. 6920149 eða erla@fastlind.is. 

Nánari lýsing: frá stigagangi er komið inn í góða flísalagða forstofu. Eldhús er með upprunalegri innréttingu, flísar eru á milli skápa, góður borðkrókur við glugga. Björt  og rúmgóð stofa með gluggum sem snúa í suðurátt, frá stofu er útgengi út á svalir sem snúa í átt að sameiginlegum garði. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum á sér svefnherbergisgangi. Baðherbergi er flísalagt með glugga, baðkari, innrétting, speglaskápur er yfir vask. Íbúðin er að miklu leyti upprunaleg. 
Sameiginleg hjóla/vagnageymslu og þvottahús. 

Húsið stendur ásamt fleiri húsum við Hraunbæ við stóran garð sem hefur skemmtilega aðstöðu fyrir börn og unglinga með leiktækjum, körfuboltaspjöld og fótboltamörkum í góðu skjóli.
Góð staðsetning í Árbænum þar sem stutt er í árbæjarlaug, skóla, leikskóla, íþróttir og aðra þjónustu. 


Nánari upplýsingar veitir Erla Dröfn Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 692-0149, tölvupóstur erla@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Hraunbær 192

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð88 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.681 þ./m²
Byggingarár1967InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2045350Fasteignamat61.800.000 kr.Brunabótamat50.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑