1 af 48
Um eignina
Árborgir Fasteignasala s: 482-4800 kynnir í einkasölu :
Mjög smekkleg útsýnisíbúð á góðum stað miðsvæðis á Selfossi.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með sléttri álklæðningu, bárujárn er á þaki. Gluggar eru ál/tré. Byggingarár hússins er skráð 1964 en árið 2007 var byggt ofan á húsið og er íbúðin því byggð 2007.
Eignin er alls 151,3m2 að stærð og er sérbyggður bílskúr 34m2 þar af. Íbúðin sem er á tveim hæðum skiptist þannig að á aðalhæð er anddyri , baðherbergi , rúmgott herbergi m/ útg. á franskar svalir, stofa/borðstofa og eldhús í opnu rými auk geymslu sem er undir stiga. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og hol auk baðherbergis sem er innaf öðru svefnherberginu. Útgengt er úr því út á mjög stórar svalir sem snúa til suðurs. Geymsla er í sameign í kjallara, auk þess sameiginlegt þvottahús. Bílskúr er innréttaður sem stúdíóíbúð og er hann í útleigu.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er parketlögð og þar er fataskápur.
Gestasnyrting er flísalögð bæði gólf og hluti veggja en þar er snyrtileg innrétting og gólfsturta.
Svefnherbergi er mjög rúmgott, parket er á gólfi og þar er stór fataskápur.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í rúmgóðu alrými, parket er á gólfi. Sérsmíðuð innrétting er í eldhúsi og er borðplata úr steini.
Þvottahús er undir stiga upp á efri hæð.
Efri hæð er töluvert undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar töluvert fleiri en skráðir eru.
Hol er parketlagt.
Herbergin eru bæði rúmgóð og er parket á gólfi. Fataskápur er í minna herberginu en í því stærra er útgengt á um 55m2 þaksvalir með fallegu útsýni. Heitur pottur er á svölunum.
Baðherbergi er innaf stærra herberginu, flísar eru á gólfi og veggjum að hluta en þar er baðkar og snyrtileg innrétting.
Bílskúr er byggður árið 1966, klæddur að utan 2007 og innréttaður sem stúdíóíbúð eftir það. Skúrinn er í útleigu og gefur fínar leigutekjur.
Bílastæði framan við skúrinn er í séreign. Lóðin er öll malbikuð og snyrtileg.
Í heildina er um að ræða bjarta og mjög skemmtilega útsýnisíbúð með einstökum þaksvölum á frábærum stað miðsvæðis á Selfossi.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Austurvegur 34
800 Selfoss
TegundFjölbýlishúsStærð151,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
89.500.000 kr.592 þ./m²
Byggingarár1964InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2306652Fasteignamat70.200.000 kr.Brunabótamat84.550.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 48 myndir
Upp ↑