fasteignasölur.is
Fríholt 6
1 af 41

Um eignina

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 (milli kl.9 og 18 alla virka daga) EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu:
Virkilega vel viðhaldið og gott 103,1fm steinsteypt raðhús með 38,5fm bílskúr samtals 141,6fm á sérlega fjölskylduvænum og góðum stað í Garði, en skemmtilegt leiksvæði er í götunni með leiktækjum ásamt sparkvelli.

Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, svefnherbergis gangi, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi ásamt bílskúri með lokuðu geymslulofti.

Nánari lýsing:
Forstofa: Er með góðum fataskápum, flísar á gólfi.
Eldhús: Er rúmgott með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá Eldskálanum, uppþvottavél fylgir, span helluborð er með viftu fyrir, einnig er huggulegur borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð með aukinni lofthæð, en hún er nýtt sem sjónvarpsstofa, borðstofa og stofa. Útgangur er út á sólpall ásamt fallegum grónum garði. Parket á gólfi.
Herbergi I: Er 13,5fm að stærð með 6 földum fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II: Er 7,8fm að stærð með 2 földum fataskáp sem nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi III: Er 7,3fm að stærð. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf og er með vask ofan á skúffu innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu ásamt handklæðaofni. 
Þvottahús: Er í sér rými með nýlegri og rúmgóðri innréttingu, gengið er í gegnum þvottahús og inn í bílskúr.
Bílskúr: Er 38,5fm að stærð með góðu lokuðu geymslulofti. Rafdrifin hurð er á bílskúrnum ásamt inngangshurð að framan verðu, en einnig er hurð með aðgangi út á verönd bakatil.
Garður: Er er með sólpalli við húsið, þvottasnúrum, grasfleti og fallegum runnum.

Viðhald:
2025 - Þvottahús endurnýjað
2024 - Þakkantur endurnýjaður að framanverður (til er efni í þakkant að aftan verðu)
2023 - Þak málað
2021 - Harðparket lagt á öll gólf fyrir utan votrými
2021 - Skipt út innihurðum en þær eru sérsmíðaðar viðarhurðar frá Víkurás
2020 - Húsið ásamt gluggum, grunnað og málað að utan

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Fríholt 6

250 Garður
TegundRað-/parhúsStærð141,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
76.900.000 kr.543 þ./m²
Byggingarár1994InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2233814Fasteignamat64.350.000 kr.Brunabótamat70.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑