fasteignasölur.is
Goðabraut 4
1 af 30

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600 

Goðabraut 4, Dalvík - 5-6 herbergja efri hæð ásamt bílskúr/studióíbúð og verslunarrými á jarðhæð - Heildarstærð 338,6 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Jarðhæð
- Verslunarrými sem er í útleigu, studíóíbúð sem er í útleigu og sameiginlegt tæknirými.
Aðalhæð - Forstofa, þvottahús, stigauppganga, gangur, eldhús, borðstofa, stofa, snyrting, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.  

Forstofa hol og stigauppganga eru með flísum á gólfi.
Þvottahús er við hliðina á forstofunni með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaska.
Hol og gangur á efri hæð eru með flísum og parketi á gólfi. 
Eldhús er með harðparketi á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu með mjög góðu skápa- og bekkjarplássi. Flísar eru á milli skápa og bekkplata er filmuð.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi, gluggar til þriggja átta og hurð til vesturs út á steyptar svalir. Steyptar tröppur eru af svölunum niður á lóð.
Svefnherbergin eru fjögur, öll ágætlega rúmgóð, með parketi á gólfi og tvö með fataskápum. Úr einu herberginu er gengið út á litlar steyptar svalir.  
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum, handklæðaofni og opnanlegum glugga. 
Lítil snyrting er á hæðinni með flísum á gólfi og hluta veggja, wc, handlaug og opnanlegum glugga. 

Í bílskúr og hluta af verslunarrýminu hefur verið innréttuð studióíbúð með sér inngangi. Þar er hiti í öllum gólfum og plastparket á alrými. 
Eldhús er með plastparketi á gólfi og ljósri innréttingu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu og speglaskáp, upphengt wc, sturta og tengi fyrir þvottavél. 

Verslunarrýmið er í útleigu og er þar starfandi apótek. 
Skiptist það í verslun, afgreiðslurými, snyrtingu, starfsmannaaðstöðu, skrifstofu, vörumóttöku o.fl. Þrír inngangar eru inn í rýmið fyrir utan aðalinnganginn.
Stein- og dúkflísar eru á helstu rýmum.
Leigusamningurinn er til 10 ára frá árinu 2020. Leigutaki hefur forleigu- og forkaupsrétt af verslunarhlutanum. 

Annað
- Hiti í stétt framan við innganga að norðan og að tröppum. 
- Nýlegur geymsluskúr er á baklóðinni. 
- Þak - Nýr pappi settur yfir gamla fyrir ca 6 árum síðan. 
- Vel staðsett eign miðsvæðis á Dalvík

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Goðabraut 4

620 Dalvík
TegundFjölbýlishúsStærð338,6 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.4
89.900.000 kr.266 þ./m²
Byggingarár1968InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2154812Fasteignamat71.100.000 kr.Brunabótamat171.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑