fasteignasölur.is
Þormóðsgata 23
1 af 6

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala kynnir í sölu.

Einbýlishús með aukaíbúð við Þormóðsgötu 23 á Siglufirði. Fallegt útsýni.
Stærð hússins er 212,6 m² skv fasteignaskrá


Skipti skoðuð.

**Fallegt og sjarmerandi einbýlishús**
**Aukaíbúð í útleigu**
**Endurnýjað að utan**
**Góð staðsetning**

Skipulag eignar
Íbúð á efri hæð: Forstofa, hol, eldhús og stofa í opnu rými, sjónvarpshol, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús/kyndikompa.
Íbúð á neðri hæð: Eldhús og stofa í opnu rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.

Upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, hordur@betristofan.is

Nánari lýsing
Forstofa er án gólfefna. Úr forstofu er timbur stigi niður í þvottahús og kyndikompu.
Eldhús og stofa eru í rúmgóðu opnu rými með gluggum til þriggja átta og þar eru loft tekin upp. Eldri innrétting og eldunareyja. Á gólfi er lakkaðar gólffjalir. Úr eldhúsi er hurð til suðurs út á timbur svalir. 
Hol og sjónvarpshol eru með lökkuðum gólffjölum og loft er tekið upp. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með lökkuðum gólffjölum. 
Baðherbergi er með dökkri innréttingu, upphengdu wc og frístandandi baðkari. Á gólfi er lakkaðar gólffjalir. 
Þvottahús og kyndikompa eru í kjallaranum. Þar er lakkað gólf og opnanlegur gluggi. Ekki er full lofthæð kjallaranum. 

Íbúð á neðri hæð er með sér inngangi á austurhlið húsins.
Komið er inn í rými sem skiptist í eldhús og stofu. Eldhúsinnréttingin er svört og viðarlituð og gólf er flotað. Við hliðina á forstofuhurðinni eru lagnir fyrir þvottavél.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, grárri innréttingu, wc, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni. Svefnherbergin eru tvö, bæði með flotuðu gólfi. 
Íbúðin er í útleigu.

Húsið hefur verið endurnýjað að hluta á síðustu árum. s.s. þak, nýjir gluggar settir í efri hæðina og hún einangruð og klædd að utan, settur gólfhiti í íbúð á neðri hæð, nýjar ofnalagnir o.fl.  Framkvæmdum er ekki lokið á efri hæðinni, eftir er að vinna í raflögnum, klæða upp í loft og ganga frá veggjum við baðherbergi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skorað er því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
Tilboð
23. maí 2022Þinglýstur kaupsamningur
37.000.000 kr.174 þ./m²
+670,8% á 9 árum
7. nóvember 2013Fyrsta sala
4.800.000 kr.23 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þormóðsgata 23

580 Siglufjörður
TegundEinbýlishúsStærð212,6 m²Herbergi7Svefnherb.4Baðherb.2
Tilboð
Byggingarár1928InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2131030Fasteignamat55.050.000 kr.Brunabótamat98.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑