fasteignasölur.is
Elliðavað 7
1 af 57

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallegt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum á frábærum stað við Elliðavað 7 í Norðlingaholti. Stórar 24,7 m2 svalir til suðurs með útgengi frá eldhúsi . Tvö baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Samkvæmt FMR eru heildarfermetrar eignarinnar 215,3 m2 þar af bílskúr 28,9 m2.

Nánari lýsing eignar 
Neðri hæð:

Forstofa/gangur með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, stór sturta, upphengt salerni, sérsmíðaður granítvaskur og háir skápar.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Stórir skápar.
Svefnherbergisgangur með flísalögðu gólfi og útgengi út á hellulagða verönd til suðurs.
Bílskúrinn er með rafdrifnum bílskúrshurðaopnara, heitt og kalt vatn og gólf málað með epoxy málningu.
Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.
Hleðslustöð fyrir rafbíla uppsett á útvegg.


Efri hæð:
Eldhús með fallegri innréttingu með steini á borði, stór eyja með steini á borði með gashelluborði, ofn í vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur með klakavél, ásamt innbyggðri uppþvottavél, parket á gólfi.
Rúmgóður eldhúskrókur með parketi á gólfi, útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi og fallegum kertaarni.
Svefnherbergi/sjónvarpsstofa með parketi á gólfi, rennihurð.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, sturta, upphengt salerni.

*  Innréttingar í eldhúsi, skápar í barnaherbergjum og í forstofu ásamt innihurðum eru sérsmíði frá  RH innréttingum.
* Steinn á borðplötu í eldhúsi og granítvaskur frá Granítsmiðjunni.
* Hurðir í herbergjum á neðri hæð eru 230 cm háar og 90 cm breiðar.
* Hurðir á efri hæð eru rennihurðir 270 cm háar og 100 cm breið í sjónvarpsherbergi/herbergi og 80 cm.á baðherbergi.
* Parket er eikarparket frá Harðviðarval, niðurlímt.
* Flísar á báðum baðherbergjum og þvottahúsi, 60x60 cm. frá Áflaborg.


Frábær staðsetning í Norðlingaholti rétt við náttúruperlur Heiðmerkur. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
 

Elliðavað 7

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundRað-/parhúsStærð215,3 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
183.000.000 kr.850 þ./m²
Byggingarár2011InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2303358Fasteignamat160.300.000 kr.Brunabótamat112.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 57 myndir

Upp ↑