fasteignasölur.is
Hólmvað 46
1 af 35

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

HÓLMVAÐ 46 – 110 REYKJAVÍK. Fallegt og vel skipulagt 172,4 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Fjögur svefnherbergi, rúmgott alrými með góðri lofthæð, stórar suðvestursvalir og afgirt timburverönd með hitaveitupotti. Hellulagt bílaplan með hitalögn og gott útsýni.
SKIPTI Á ÓDÝRARI EIGN Í HVERFINU KOMA TIL GREINA.
Bókið skoðun: Þórarinn M. Friðgeirsson, löggiltur fasteignasali. Sími 899-1882 | thorarinn@eignamidlun.is
Smelltu hér fyrir söluyfirlit
EIGNIN: Eignin er skráð samtals 172,4 fm og skiptist í 63,9 fm neðri hæð, 79,8 fm efri hæð og 21,9 fm bílskúr. Innaf bílskúr er teiknuð 6,8 fm sérgeymsla sem ekki hefur verið stúkuð af og nýtist því bílskúrinn í dag sem um 28,7 fm rými.
Neðri hæð: Forstofa og hol með skápum, rúmgott þvottahús, endurnýjað baðherbergi og tvö svefnherbergi. Útgengt er á stóra, afgirta timburverönd með hitaveitupotti. Baðherbergi er vandað og flísalagt með góðri innréttingu, vegghengdu salerni og „walk-in“ sturtu. Þvottahús er flísalagt með innréttingu og handklæðaofni. Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með góðum skápum.
Efri hæð: Bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð, eldhúsi, borðstofu og stofu ásamt tveimur svefnherbergjum. Eldhús er opið með sprautulakkaðri innréttingu og eyju. Borðstofa er við stóra útsýnisglugga og þaðan er gengið út á 13,4 fm suðvestursvalir. Stofa er rúmgóð og parketlögð.
ÚTISVÆÐI OG BÍLSKÚR: Við húsið er hellulagt bílaplan með hitalögn. Á neðri hæð er stór afgirt timburverönd með hitaveitupotti og á efri hæð stórar svalir til suðvesturs. Innbyggður bílskúr fylgir eigninni.
Þak hússins hefur verið endurnýjað, bæði járn og pappi.  Góð fjölskyldueign á frábærum stað í grónu hverfi með góðu útsýni.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Þórarinn M. Friðgeirsson, löggiltur fasteignasali
Sími 899-1882 | thorarinn@eignamidlun.is
Eignamiðlun – sími 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
138.900.000 kr.806 þ./m²
+18,2% á 3 árum
29. ágúst 2023Þinglýstur kaupsamningur
117.500.000 kr.682 þ./m²
+55,6% á 5 árum
1. febrúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
75.500.000 kr.438 þ./m²
+151,7% á 12 árum
31. maí 2007Fyrsta sala
30.000.000 kr.174 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hólmvað 46

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundRað-/parhúsStærð172,4 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.1
138.900.000 kr.806 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2286756Fasteignamat135.650.000 kr.Brunabótamat88.630.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑