fasteignasölur.is
Stóragerði 8
1 af 32

Um eignina

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS. milli kl.9 og 18 alla virka dagaa Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu:
Virkilega huggulega og endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni á efstu hæð með 2 svölum við Stóragerði 8, 108 Reykjavík. Eigninni fylgir 20,9fm bílskúr í bílskúrslengju á lóð. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin er skráð 93,2fm þar af er 6,7fm geymsla í kjallara.

Eignin samanstendur af: 3 svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og borðstofu, 2 svölum. bílskúr ásamt 2 geymslum.

Nánari lýsing 
Forstofuhol: Er rúmgott, parketi á gólfi.
Eldhús / Borðstofa / Stofa: Eru í sameiginlegu opnu björtu og flæðandi rými með fallegu útsýni. Eldhúsið er með fallegri innréttingu á tvo vegu með innbyggðri uppþvottavél, span helluborði, gert er ráð fyrir ísskáp við hlið innréttingu. Úr stofunni er útgangur út á svalir.
Baðherbergi: Er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta , innrétting er með tveimur skúffum, þreplausri sturtu, opnanlegum glugga, veggföstu salerni ásamt handklæðaofni, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi I: Er með fataskápum ásamt útgangi út á svalir. Parketi á gólfi.
Herbergi II: Er ??fm að stærð. Parketi á gólfi.
Herbergi III: Er ??fm að stærð. Parketi á gólfi.
Geymslur: Eru 2, önnur er innan íbúðar með parketi á gólfi en hin er 6,7fm að stærð og er í sameign
Þvottahús: Er stórt og snyrtilegt í sameign, hver með sýna vél ? 
Bílskúr: Er 20,9fm að stærð með heitu og köldu vatni.

Samkvæmt fyrra söluyfirlit voru helstu framkvæmdir 2025:
* Eldhús fært fram í stofu og þriðja svefnherberginu bætt við
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum
* Baðherbergi endurnýjað 
* Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina, ný ljós og nýir tenglar
* Öll gólfefni endurnýjuð
* Öll eignin spörsluð og máluð
* Innihurðar endurnýjaðar

Endurbætur á sameign:
2018 - Húsið endursteinað
2022 - Sléttir fletir málaðir
2022 - Hitaþræðir settir í þakrennur

Þetta er vel skipulögð íbúð á frábærum stað í Reykjavík. Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Örstutt er í Austurver með alla sína þjónustu (matvöruverslun, bakarí, læknavakt, o.fl.). Stutt í verslunarmiðstöðina Kringluna.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
79.900.000 kr.685 þ./m²
+6,0% á 1 ári
5. desember 2025Fyrsta sala
75.400.000 kr.646 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stóragerði 8

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð116,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.900.000 kr.685 þ./m²
Byggingarár1962InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2033316Fasteignamat77.600.000 kr.Brunabótamat57.860.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑