fasteignasölur.is
Grænaborg 14 (101)
Opið hús 28. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 33

Um eignina

Valný fasteignasala og Kristín María Gunnarsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna:

Grænaborg 14 (101), 190 Vogar

Björt og rúmgóð 106,2 fm fimm herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og suðurverönd að Grænuborg 14 í Vogum.
Íbúðin er einstaklega fjölskylduvæn endaíbúð á jarðhæð í vönduðu 12 íbúða fjölbýlishúsi. Í eigninni eru forstofa, hol, fjögur svefnherbergi (þar af eitt teiknað sem geymsla með glugga), flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart alrými með fallegri eldhúseyju, stofu og útgengi á skjólsæla suðurverönd. Gott aðgengi er að hleðslustöðvum á bílaplani.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. 

Sýnum samdægurs!


Forstofa: Sérinngangur, fataskápur ásamt fatahengi og flísar á gólfi.
Hol: Bjart rými með parketi sem tengir saman allar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Falleg og vönduð innrétting með miklu skápa- og vinnuplássi. Rúmgóð eldhúseyja sem hægt er að sitja við og tengir eldhúsið við stofuna. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými, fallegir gluggar, parket á gólfi og beint útgengi á sólríka suðurverönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi IV, skráð geymsla: Rými með parketi á gólfi og glugga. Rýmið er teiknað sem geymsla en nýtist sem fjórða svefnherbergið eða vinnuherbergi.
Baðherbergi/þvottaaðstaða: Flísalagt á gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting við vask, rúmgóð „walk-in“ sturta, upphengt salerni og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sólrík verönd í suður og tyrfð lóð.

Grænaborg 14 er nýlegt og sérlega fallegt tveggja hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum, teiknað af Arkís arkitektum. Húsið er byggt á vandaðan máta, vel einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu sem lágmarkar viðhaldskostnað til framtíðar. Nálægð við skóla og alla helstu þjónustu. 

Mjög fjölskylduvæn eign
Endaíbúð með glugga á þrjá vegu
Fjögur svefnherbergi
Sérinngangur
Sér suður verönd
Aðeins 15 mín akstur í Reykjanesbæ og 20 mínútur í Hafnarfjörð


Allar nánari upplýsingar veitir:
Kristín María / Löggiltur fasteignasali / 659-6075 / kristin@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Grænaborg 14 (101)

190 Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð106,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
65.900.000 kr.621 þ./m²
Byggingarár2022InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2512495Fasteignamat64.900.000 kr.Brunabótamat60.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangReykjanesvegur 40, 260 ReykjanesbæSími780-2575

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑