Um eignina
Um er að ræða einstakt hús sem hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er 375,6 fm að stærð og er á frábærum stað við Smáragötu. Stór endurnýjaður garður er við húsið en hann snýr til suð-vesturs og er með fallegum gróðri og veröndum með skjólveggjum, auk úti saunu. Garðurinn var tekinn í gegn árið 2023 og var m.a. jarðvegsskiptur, hellulagt var við hlið hússins, nýr gróður gróðursettur, og saunu komið fyrir. Auk þess var nýtt grindverk sett upp á milli húsa.
Eignin er á þremur hæðum og eru allar innréttingar sérsmíðaðar. Henni fylgja vönduð eldhústæki og gólfefni ásamt blöndunartækjum og sérsniðnum gardínum. Allt húsið er er handmálað með kalkmálingu og parketlagt með olíubornum aski. Gardínur eru sérsaumaðar fyrir húsið og úr 100% hör. Gólfihiti er í öllu húsinu og allar lagnir hafa verið endurnýjaðar, sem og stýrikerfi. Íbúðarhlutinn er skráður 351,8 fm og bílskúrinn er 23,8 fm.
Nánari lýsing:
Miðhæð
Gengið er inn í húsið á miðhæðinni. Þar eru tvennir inngangar. Hefðbundinn inngangur á framhlið hússins þar sem er lítil forstofa, og annar á hlið hússins þar sem gengið er inn í stórt fatahengi með nægu rými fyrir útifatnað. Á hæðinni er eldhús, eldhúskrókur og borðstofa í sama rými, setustofa, og gestasalerni.
Eldhúsinréttingin er sérsmíðuð úr timbri úr 200 ára gamalli norskri hlöðu og borðplatan er kvartsít plata með innbyggðu skurðarbretti.
Eldhúsið er útbúið með SMEG eldavél og ofni, Liebherr tvöföldum ísskáp, Miele uppþvottavél og tvöföldum viðarvaski með Axor blöndunartækjum. Frá borðkrók er útgengt út í skjólsælan garð með verönd, skjólveggjum og saunu. Borðstofan er með fallegum arni sem einnig snýr inn í setustofu með fallegum sérsmíðuðum bókahillum (sami viður og eldhúsinnrétting), sófinn er sérhannaður í plássið og fylgir eigninni.
Efri hæð
Gengið er upp afar glæsilegan stiga. Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, en eitt þeirra er nýtt í dag sem "screening room" sem útbúið er til að horfa á kvikmyndir í hæstu gæðum með góðu hljóði.Barnaherbergið er með mjög stórt og þaðan er útgengt á svalir. Hjónasvítan er með útgengi út á svalir, rúmgóðu fataherbergi og glæsilegu baðherbergi. Steinbaðkar ásamt steinvöskum og Axor blöndunartækjum. Sturtan er opin og innréttingin er sérsmíðuð. Listaverk úr útskornu járni er í gluggum sem gefa fallega birtu inn á baðherbergið.
Neðri hæð
Stúdíó íbúð er á neðri hæð. Hún er útbúin með eldhúsi, salerni, sturtu og hálflokuðu svefnherbergi ásamt fataherbergi með sérsmíðuðum hirslum. Innréttingin er sérsmíðuð með innbyggðum tækjum og borðplatan er endurunnin úr gamla gólfinu í keiluhöllinni ásamt fleiri innréttingum í kjallara.
Rúmgott þvotthús með sérsmíðaðri innréttingu. Þrjár geymslur er á neðri hæðinni og ein þeirra er innaf þvottahúsi en sú geymsla er með kælikerfi og hentar til dæmis sem vínkjallari.
Bílskúr hefur ekki verið uppgerður en teikningar af stækkun eru til.
Þetta er einstök eign í virðulegu húsi þar sem engu hefur verið til sparað.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Smáragata 10
Staðsetning
Allar 68 myndir
Upp ↑


































































