fasteignasölur.is
Þorrasalir 15
1 af 50

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega , bjarta og vel skipulagða 3.herbergja íbúð í lyftublokk með sérinngangi frá svölum og útgengi út á timburverönd til vesturs með skjólveggjum og hliði út í garð. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu með tengi fyrir rafhleðslustöð. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 86,5 m2 auk 6,8 m2 geymslu. Samtals 93,3 m2. Eignin er á skráð á 3.hæð en er á jarðhæð til vesturs.

Nánari lýsing.
Forstofan er flísalögð.
Gangur/miðrými er með harðparketi á gólfi og innbyggðum eikarfataskáp.
Eldhús með fallegri og vandaðri innréttingu með nýlegri borðplötu,  efri og neðri skápum og ljúflokunum á skúffum og nýlegri innbyggðri uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, nýlegt span helluborð og bakaraofn, harðparket á gólfi. 
Stofa með harðparketi á gólfi og útgegni út á vesturverönd með skjólveggjum og hliði út í sameiginlegan garð. 
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fjórföldum eikarfataskáp.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og þreföldum eikarfataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum nánast upp í loft, baðkar með nýlegu sturtugleri, eikarinnrétting með spegli ,handklæðaofn , upphengt salerni.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og nýrri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þvottasnúrur.
Geymsla með hillum og máluðu gólfi. 

* Bílageymsla var máluð að utan 2024
* Húsið var málað og sprunguviðgert í sumar 2026
* Sjálfvirk hurðaopnun sett í anddyri og bílageymslu 2026

* Öllum ljósum í bílageymslu skipt út fyrir LED 2026
* Gert er ráð fyrir að stigagangur verði málaður fyrir áramót 2026


Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í Salaskóla, leikskólann Fífusalir, Salalaug, heilsugæslu, verslun Nettó og golfvöllur Kópavogs og Garðabæjar. 

Húsgjöld íbúðar eru 35.790 kr. en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn sem og allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, þrif sameignar og sorpgeymslu, húseigendatrygging og umhirða garðs.

Sameign hússins er mjög snyrtileg Allar upplýsingar gefur Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
79.900.000 kr.856 þ./m²
+57,0% á 6 árum
12. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
50.900.000 kr.546 þ./m²
+27,2% á 3 árum
10. apríl 2018Þinglýstur kaupsamningur
40.000.000 kr.429 þ./m²
+27,0% á 3 árum
18. desember 2014Fyrsta sala
31.500.000 kr.338 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þorrasalir 15

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð93,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.856 þ./m²
Byggingarár2015InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2349609Fasteignamat76.350.000 kr.Brunabótamat59.520.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑