Um eignina
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Hverabraut 16-18, Laugarvatni, Bláskógabyggð.Sveitarfélagið Bláskógabyggð leitar eftir kauptilboðum í fasteignina Hverabraut 16 – 18, landeignanúmer L227720. Lóðin, sem er leigulóð, er 3.632 m2 að stærð og á henni er 1,394 m2 bygging sem hýsti fyrrum heimavist íþróttakennaraskólans á Laugarvatni.
Staðsetning byggingarinnar er einstök. Fasteignin stendur á gullfallegum stað þar sem óviðjafnanlegt útsýni er yfir Laugarvatn og nágrenni þess. Laugavatn er við Gullna hringinn og felast því mikil tækifæri í uppbyggingu á svæðinu.
Byggingin samanstendur af eftirfarandi rýmum:
2. hæð. 12 svefnherbergi, eldhús, salernis- og sturtuaðstaða og setustofur. Tvennar svalir.
1. hæð. 11 svefnherbergi, stórt eldhús og matsalur, minna eldhús, salernis- og sturtuaðstaða, starfsmannaaðstaða og setustofa. Svalir og útiverönd.
Kjallari. 3 svefnherbergi, 10 geymslur, þrír fjölnotasalir, salernis- og sturtuaðstaða, gufubað, búnings- og starfsmannaaðstaða.
Fasteignamat 2026 er 245.600.000 kr og brunabótamat 653.100.000 kr. Húsið er steinsteypt, byggt 1968.
Teikningar verða sendar áhugasömum kaupendum. Deiliskipulag svæðisins er frá 2021 og hefur verið gerð ein breyting á því árið 2023. Stækkunarmöguleikar byggingarinnar á lóðinni án deiliskipulagsbreytingar eru 422 m2.
Vakin er athygli á að rakaskemmdir hafa greinst á nokkrum stöðum í húsinu og þörf er á endurbótum. Ástandsmöt og greiningar frá sérfræðingum liggja fyrir og eru aðgengilegar áhugasömun kaupendum.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Lögmenn Suðurlandi
Tilboð
5. janúar 2026Fyrsta sala
215.000.000 kr.154 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hverabraut 18
840 Laugarvatn
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð2383,6 m²Herbergi31Svefnherb.26Baðherb.11
Tilboð
Byggingarár1968InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2503154Fasteignamat397.750.000 kr.Brunabótamat1.135.200.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
