fasteignasölur.is
Fífuvellir 13
1 af 44

Um eignina

Miklaborg kynnir: Glæsileg fjölskyldueign á frábærum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Um er að ræða endaraðhús á tveimur hæðum auk bílskúrs og er örstutt í leik og grunnskóla ásamt einu flottasta fjölíþróttasvæði landsins hjá íþróttafélagi Hauka. Skv. HMS er eignin skráð samtals 209,7 fm að stærð., íbúð 184,5 fm og bílskúr 25,2 fm. Íbúðin telur í dag forstofu, 2 baðherbergi auk þvottaherbergis inn af öðru þeirra, eldhús, borðstofu og stofu saman í opnu alrými og svo 5 rúmgóð svefnherbergi en einu svefnherbergi var bætt við þar sem áður var sjónvarpsrými.
Stór og góður tímburpallur sem snýr í suð-suðvestur og með útsýni yfir opið náttúrusvæði í átt að Hraunvallaskóla. Heitur pottur er á pallinum auk útisturtu. Hluti af lóðinni er umvafinn hrauni sem gerir lóðina einstaklega fallega.


Neðri hæð
Forstofa rúmgóð með flísum á gólfi, rými fyrir góðar fatahirslur. Úr forstofu er einnig hægt að ganga inn í bílskúr.
Borðstofa/stofa saman í opnu rými með gólfsíðum gluggum til austurs, vesturs og suðurs. Parket er á gólfi. Gengið er út á verönd úr stofunni.
Svefnherbergi 1 (sem áður var sjónvarpshol) rúmgott með parket á gólfi.
Eldhús mjög rúmgott með nýlegri hvítri innréttingu með innbygðum ísskáð og uppþvottavél. Mikið vinnupláss. Flísar á gólfi.
Baðherbergi1 flísalagt að hluta. Upphengt salerni og baðkar. Inn af baðherberginu er gengið inn í þvottaherbergi með góðum geymslueiningum og vinnuborði með vaski. Flísar á gólfi.
Gólfhitakerfi er á íbúðarhluta neðri hæðar.
Bílskúr með flísum á gólfi. Góð vinnuaðstaða og skápar. Útgengt út á verönd úr bílskúrnum. Bílaplan með hleðslustöð og snjóbræðslu.

Efri hæð

Komið er upp parketlagðan bogadreginn stiga með hertu gleri og lýsingu.
Svefnherbergi 2 rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi. Aukin lofthæð.
Svefnherbergi 3 rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi. Aukin lofthæð.
Svefnherbergi 4 rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi. Aukin lofthæð.
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp. Gluggar á tvo vegu. Parkert á gólfi. Aukin lofthæð.
Baðherbergi 2 flísalagt að hluta. Hlaðin walk-in sturta. Upphengt alerni. Handklæðaofn.

Eins og fram hefur komið er hér um að ræða frábæra fjöskyldueign á vinsælum stað í Hafnarfirði í göngufæri við helstu þjónustu og gönguleiðum í fallegri náttúru.

Allar nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is


Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
132.900.000 kr.634 þ./m²
+8,0% á 2 árum
23. apríl 2025Fyrsta sala
123.000.000 kr.587 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fífuvellir 13

221 Hafnarfjörður
TegundRað-/parhúsStærð209,7 m²Herbergi5Svefnherb.5Baðherb.2
132.900.000 kr.634 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2269734Fasteignamat132.350.000 kr.Brunabótamat110.710.000 kr.
Skráð hjá
Ingimundur Kristján IngimundarsonLöggiltur fasteignasali867-4540 · Ingimundur@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑