fasteignasölur.is
Hverafold 23
Opið hús 4. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 39

Um eignina

Glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð með stæði í bílakjallara við Hverafold 23.

Við Hverafold 23 í Grafarvogi er til sölu einstaklega falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð hússins.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, er björt og rúmgóð og státar af stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgina af vestursvölum. Með eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Eignin er samtals 92,1 fm, þar af er íbúðin 88,4 fm og sérgeymsla í kjallara 3,7 fm.

Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús með borðkrók, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi.
Sérlega vel hefur verið hugað að endurnýjun og nýtingu rýmisins, en meðal annars hafa gólfefni, innihurðir og rafmagnstenglar verið endurnýjuð og baðherbergi og þvottahús tekið í gegn.

Nánari lýsing
Forstofa: Parketlögð forstofa , inn af forstofu er sér þvottahús.
Þvottahús: Flísalagt og vel útbúið með innréttingu, bekk, vaski, skápum og snúrum. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Falleg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Innfelld uppþvottavél og bakstursofn í vinnuhæð, auk rýmis fyrir tvöfaldan ísskáp. Fallegt útsýni til vesturs.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með parketi á gólfi og góðri tengingu við eldhúsið.
Úr stofu er gengið út á vestursvalir þar sem útsýnið yfir borgina nýtur sín til fulls. Á svölunum er viðarklæðning á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og parketlagt herbergi með fatahengi og gluggum til austurs.
Barnaherbergi: Parketlagt herbergi með fataskáp og gluggum til austurs, sem hentar vel sem barnaherbergi, vinnuherbergi eða gestaherbergi.
Baðherbergi: Glæsilegt og endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Rúmgóð, þrepalaus sturta með innfelldum blöndunartækjum og opnanlegum glugga. Gólfhiti og hiti í vegg.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara með góðum hillum. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í húsinu.
Bílastæði: Sérstakt bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Þar er einnig aðstaða til bílaþvotta.
Fyrir framan húsið eru sameiginleg bílastæði og þar hefur verið komið fyrir hleðslustöð.

Endurbætur og viðhald
Eignin hefur fengið gott viðhald og umtalsverðar endurbætur hafa verið gerðar bæði á íbúðinni sjálfri og ytra byrði hússins, samkvæmt upplýsingum frá seljanda.
Framkvæmdir á ytra byrði hússins:
  • 2026: Múrviðgerðir á tröppum fyrir framan húsið og flísalögn í anddyri.
  • 2025: Þak og þakkantur yfirfarin og máluð.
  • 2024: Skipt um glugga og gler á austurhlið íbúðarinnar.
Endurbætur innan íbúðar árið 2023:
  • Baðherbergi: Baðherbergið endurnýjað, þrepalaus sturta sett upp með innfelldum blöndunartækjum,
  • gólfhiti og hiti í vegg settur upp ásamt nýrri baðinnréttingu og speglaskáp með aukarafmagnstenglum.
  • Þvottahús: Gólf flísalagt og ný innrétting sett upp með aðstöðu fyrir vask.
  • Gólfefni og innihurðir: Gólfefni endurnýjuð í allri íbúðinni og öllum innihurðum skipt út.
  • Rafmagn og nettengingar: Rofar og rafmagnstenglar endurnýjaðir. Ethernet-netlögnum komið fyrir í hjónaherbergi og aukaherbergi.
  • Eldhús: Nýr bakstursofn og veggháfur sett upp og skápapláss aukið til að koma fyrir tvöföldum ísskáp.

Staðsetning og nærumhverfi
Hverafold er í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Falleg náttúra, útivistarsvæði og gönguleiðir eru jafnframt í næsta nágrenni.
Samantekt
Hér er um að ræða bjarta, fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð, með stórbrotnu útsýni, vestursvölum og stæði í lokaðri bílageymslu. Vel útfærðar endurbætur, gott skipulag og sér þvottahús 
gera eignina að spennandi kosti fyrir þá sem leita að þægilegu heimili í grónu hverfi með náttúru og allri helstu þjónustu innan seilingar.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Ás
74.900.000 kr.813 þ./m²
+29,4% á 4 árum
30. nóvember 2022Þinglýstur kaupsamningur
57.900.000 kr.629 þ./m²
+21,9% á 1 ári
8. september 2021Þinglýstur kaupsamningur
47.500.000 kr.516 þ./m²
+74,6% á 7 árum
16. apríl 2014Þinglýstur kaupsamningur
27.200.000 kr.295 þ./m²
+32,7% á 7 árum
29. mars 2007Fyrsta sala
20.500.000 kr.223 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hverafold 23

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð92,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
74.900.000 kr.813 þ./m²
Byggingarár1985InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2042607Fasteignamat68.800.000 kr.Brunabótamat55.230.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑