fasteignasölur.is
Traustatún 6
1 af 17

Um eignina

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. Traustatún 6.  Íbúð 101. Jarðhæð með sérinngangi, tveggja herbergja 67,1 fm. Nýlegt og vandað staðsteypt og klætt, viðhaldslétt,  fimm íbúða fjölbýlishús á fallegri útsýnislóð á Laugarvatni. 

Íbúðin er  67,1 fm með sérinngangi á jarðhæð. Opin forstofa með fataskáp, hol, eldhús og stofa í opnu rými, góð eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Sérverönd út frá stofu. Fallegt útsýni. Eitt svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfum. Rúmgott flísalagt baðherbergi, innrétting og opin sturta.  Opið þvottahús inn af baðherbergi. 
Geymsla/inntaksrými í sameign.

Frágengin lóð, sérafnotaréttur af grasflöt framan við hús. Stórt steypt bílastæði. Hiti í gangstéttum. 

Vönduð gólfefni og innréttingar frá Parka.  Í húsinu er ofnakerfi.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið skoðun.


Laugarvatn er fallegt þorp sem stendur við samnefnt vatn. Vel staðsett, í Bláskógabyggð á "Gullna hringnum".  Fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  Á Laugarvatni er leikskóli, grunnskóli og menntaskóli. Þar er verslun, veitingastaðir, Fontana o.fl. Margvísleg afþreying í ferðaþjónustu í næsta nágrenni. Ca 30 mín akstur á Selfoss og 50 mín í Mosfellsbæ.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, lagt á að lokinni lokaúttekt

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
44.400.000 kr.662 þ./m²
+14,1% á 2 árum
1. júlí 2024Fyrsta sala
38.920.000 kr.580 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Traustatún 6

840 Laugarvatn
TegundFjölbýlishúsStærð67,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
44.400.000 kr.662 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2523754Fasteignamat39.750.000 kr.Brunabótamat41.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑