fasteignasölur.is
Vindakór 5-7 íb. 402
1 af 32

Um eignina

Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með góðu útsýni.
Björt og falleg 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð, með rúmgóðum lokuðum svölum,
fallegu útsýni til fjalla og sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu.

Eignin er samtals 126,2 fm, þar af er íbúðin 114,1 fm og sérgeymsla 12,1 fm.

Íbúðin er einstaklega rúmgóð og vel skipulögð. Stutt er í skóla, leikskóla og verslun og Heiðmörk er í næsta nágrenni.

Nánari lýsing
Forstofa:
Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús og stofa:
Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengi á rúmgóðar og sólríkar svalir með svalalokun.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu. Eldhúseyja býður upp á gott geymslupláss. Ofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð og gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Stofa og borðstofa flæða vel saman við eldhúsið og skapa notalegt og rúmgott sameiginlegt rými. Parket er á gólfum.
Svefnherbergi:
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með parketi á gólfum og hvítum fataskápum.
Baðherbergi:
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og er með bæði sturtu og baðkari. Falleg innrétting, skápur og handklæðaofn.
Þvottahús:
Þvottahús er innan íbúðar og þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og góð skápainnrétting.
Geymsla og sameign:
Sérgeymsla fylgir eigninni, auk hefðbundinnar hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla:
Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu, merkt B-20. Hleðslustöð frá Ísorku er komin við stæðið.

Framkvæmdir utanhúss
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda:
  • 2022–2023: Skipt var um þakpappa og flasningar og vatnshalli lagaður á þaki, þaksvölum og lyftuhúsi. Smíðaverk og Þaklagnir sáu um framkvæmdina.
  • 2023–2024: Framkvæmd var innsprautun í sprungur þar sem þess þurfti.


Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Vindakór 5-7 íb. 402

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð126,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
92.500.000 kr.733 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2294145Fasteignamat90.000.000 kr.Brunabótamat73.060.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑