fasteignasölur.is
Hringbraut 73
Opið hús í dag kl. 16:30–17:00
1 af 27

Um eignina

Vernharð Þorleifsson lgf og Magga Gísladóttir lgf kynna bjarta og fallega fjögurra herbergja sérhæð með bílskúr og sér stæði að Hringbraut 73, 101 Reykjavík.
Stutt í alla þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla og Háskóla Íslands, kaffihús, sundlaug og miðbæ Reykjavíkur.
Eignin skiptist í efri sér hæð með þremur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu og eldhús.
Í kjallara er sér geymsla sem fylgir eigninni og stærri geymsla sem hefur verið útbúin sem stúdíó íbúð.
Jafnframt fylgir eigninni 18,2 fm bílskúr.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram


Skoðaðu eignina hér í 3D

Gengið er inn í eignina í gegnum sérinngang frá götu og upp stiga á aðra hæð hússins. 
Öll rými eru með gegnheilu hvíttuðu parketi á gólfum, nema minna barnaherbergið. Frá forstofu er gengið inn á baðherbergi og herbergi eignarinnar ásamt stofu og inn af stofu er eldhús. 
Hjónaherbergið er með glugga í suður og rúmgóðum fataskáp. 
Barnaherbergin eru tvö og í öðru þeirra er gengið út á suður svalir. Annað barnaherbergið er með flotuðu golfi. 
Baðherbergið hefur verið endurnýjað með sturtu og baðkari og dökkum flísum á gólfi og hluta veggja.
Lítil geymsla er á hæðinni og gengt upp á háaloft sem er í sameign. 
Í kjallara í sameign eru þrjú rými sem tilheyra eigninni en eru óskráð hjá HMS. Tvær geymslur og lítil stúdíó íbúð sem er nýlega uppgerð. Einnig er sameiginlegt klósett í kjallara og sér inngangur, þvottaherbergi, þurrkherbergi og hjólageymsla. Möguleiki er á að setja upp sturtu í þvottahúsi.
18,2 fm bílskúr er á lóð og sér bílastæði fyrir framan. Rýmið er í dag nýtt sem vinnustofa en býður upp á ýmsa möguleika. 

Yfirlit yfir framkvæmdir:
2025 var skipt um rafmagnstöflu í sameign.
2025 ný ofnalögn, neysluvatnslagnir og niðurfall í stúdíó íbúð. 
2025 nýjar neysluvatnslagnir í íbúð á hæð. 
2022 Bílskúr múrviðgerður og málaður og þakið lagað. 
2011 skipt um þakjárn, túður, þakglugga og flasningar í kringum skorstein. Þakkantur og þakrennur einnig endurnýjaðar. 


Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
87.900.000 kr.962 þ./m²
+87,0% á 6 árum
30. desember 2020Fyrsta sala
47.000.000 kr.514 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hringbraut 73

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð91,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
87.900.000 kr.962 þ./m²
Byggingarár1936InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2026878Fasteignamat75.000.000 kr.Brunabótamat60.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑