fasteignasölur.is
Laufásvegur 19
Opið hús 29. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 28

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu LAUFÁSVEGUR 19, 101 Reykjavík. Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur. Eignin skiptist meðal annars í rúmgóða stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, og geymslu-/þvottarými innan íbúðar.

Eignin er skráð alls 91,5 fm. samkvæmt HMS. - Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:
Forstofa
: Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Þaðan er komið inn á parketlagðan gang sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
Stofa 1: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Góð aðstaða fyrir setustofu og borðstofu.
Stofa 2: Björt og rúmgóð stofa inn af Stofu 1 með tvöfaldri glerhurð, stórum glugga og parketi á gólfi. Stofan er í dag nýtt sem skrifstofu eða aukaherbergi en býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem annað svefnherbergi. 
Eldhús: Rúmgott eldhús með eldhúsinnréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Innbyggður ísskápur, bakaraofn, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Aðstaða fyrir eldhúsborð og útgengt á skjólgóðum timburpalli.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, stórum glugga og fataskáp. Inn af herberginu er geymslu-/þvottarými með glugga, parketi á gólfi og tengingu fyrir þvottavél. Rýmið býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem fataherbergi (e. walk-in closet).
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og handlaug með innréttingu.
Pallur: Rúmgóður og skjólgóður timburpallur með útsýni yfir gróið nærumhverfi. Útgengt er á pallinn úr eldhúsi.
*Olíuborið viðarparket er á öllum gólfum íbúðarinnar, að undanskildum eldhúsi, baðherbergi og forstofu, þar eru flísar.*

Nýlegar endurbætur:
2020 Húsið múrað og heilmálað að utan.
2019 Nýjir dyrasímar með myndavél.
2017 Skipt um þak og þakrennur endurnýjaðar.
2014 Rafmagnstafla í sameign færð og endurnýjuð.

Eignin er staðsett í eitt af rótgrónustu og eftirsóttustu íbúðarhverfi miðborgarinnar. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf borgarinnar. Í næsta nágrenni eru falleg útivistarsvæði, meðal annars Hljómskálagarðurinn og Tjörnin. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.

Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s. 894-1976 / audun@trausti.is
Bóka verðmat
www.trausti.is
Trausti á Facebook
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
79.900.000 kr.873 þ./m²
+105,4% á 13 árum
9. janúar 2014Fyrsta sala
38.900.000 kr.425 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laufásvegur 19

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð91,5 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
79.900.000 kr.873 þ./m²
Byggingarár1933InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2006763Fasteignamat79.300.000 kr.Brunabótamat45.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑