Um eignina
Í einkasölu: eignina Sambyggð 18, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 251-0391 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Sér inngangur er inn í 84,5 fm íbúðina sem er á 1. hæð.
Hún skiptist í :
Forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara, geymslu innan íbúðar og nærri 40 fm alrými eldhúss og stofu. Möguleiki á að bæta við 3ja svefnherberginu þar.
Lofthæðin er nærri 280 sm sem gefur upplifun á meira rými.
Gengið er út í garðinn á steyptan sérafnotareit. Gólfefni eru harðparket og flísar.
Bað- og eldhúsinnréttingar er hvít sprautulökkuð með gráum borðplötum og burstuðu stáli á milli skápa í eldhúsinu. Hvítar innihurðar.
Sameignin telur stigahús með lyftu, lagna-, hjóla- og vagnageymslu.
Húsið er stálgrindarhús einangrað að utan með innbrenndu áli. Þrefalt gler í gluggum.
Rafbílahleðsla er á bílastæði.
Eignin Sambyggð 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-0391, birt stærð 84.5 fm.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Sambyggð 18
Staðsetning
Allar 38 myndir
Upp ↑




































