fasteignasölur.is
Suðurvangur 2
Opið hús 29. okt. kl. 16:30–17:00
1 af 42

Um eignina

** Opið hús fimmtudaginn 29. október frá kl. 16:30 til 17:00 - Suðurvangur 2, íbúð 201 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 -  Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð við Suðurvang 2 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 102,0 m2 en þar af íbúð 96,2 m2 og geymsla 5,8 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 4 svefnherbergi, gang, baðherbergi og geymslu. Búið er að breyta þvottahúsi í svefnherbergi og bæta við herbergi í stofu. Auðvelt er að breyta til baka. Góðar svalir í vesturátt. Góð staðsetning þar sem stutt er í leik-og grunnskóla, ýmis konar verslun og þjónustu og góðar samgönguleiðir. 

Skv. upplýsingum frá seljanda hefur húsið fengið gott viðald síðustu ár m.a. var þak endurnýjað árið 2012, gluggar endurnýjaðir (framhlið árið 2016 og bakhlið árið 2023), rafmagnstafla endurnýjuð árið 2020. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 er inn af eldhúsi og með flotuðu gólfi. Herbergi var áður þvottahús. Lagnir eru enn til staðar og því auðvelt að breyta til baka.
Svefnherbergi nr. 2 er lítið aukaherbergi sem hefur verið bætt við í stofu. Er með parketi á gólfi, glugga með opnanlegu fagi og rennihurð. Nýtist sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 4 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar og góðar svalir sem snúa í vesturátt.
Gangur er með parketi á gólfi. Í fataskáp er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi, vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu með handlaug. Gluggi er á baðherbergi.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 5,8 m2 og er með glugga.

Eigninn fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Verð kr. 69.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
69.900.000 kr.685 þ./m²
+9,2% á 3 árum
6. febrúar 2024Þinglýstur kaupsamningur
64.000.000 kr.627 þ./m²
+7,6% á 1 ári
16. nóvember 2022Þinglýstur kaupsamningur
59.500.000 kr.583 þ./m²
+51,4% á 4 árum
17. ágúst 2018Þinglýstur kaupsamningur
39.300.000 kr.385 þ./m²
+66,2% á 4 árum
11. febrúar 2015Þinglýstur kaupsamningur
23.650.000 kr.232 þ./m²
+32,9% á 7 árum
14. mars 2008Fyrsta sala
17.800.000 kr.175 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Suðurvangur 2

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð102 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
69.900.000 kr.685 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2079931Fasteignamat64.700.000 kr.Brunabótamat51.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑