fasteignasölur.is
Mýrartún 22
Opið hús 28. okt. kl. 16:15–16:45
1 af 31

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Mýratún 22 - neðri hæð. Björt og vel skipulögð 3–4 herbergja 97,4 fm íbúð með sérinngangi og stórri steyptri suðurverönd í Naustahverfi á Akureyri. 

** Eignin verður sýnd miðvikudaginn 28. október kl 16:15-16:45 - Vinsamlegast skráið ykkur á sölusýningu á kasa@kasafasteignir.is **
** Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður **

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu sem getur nýst sem þriðja herbergið. 


Forstofa er með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús og stofa eru með flísum á gólfi. Í eldhúsi er góð eikarinnrétting með eyju, flísum á milli skápa og góðu vinnuplássi. Pláss er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu og bakaraofn er í vinnuhæð. Úr alrými er gengið út á stóra steypta verönd sem snýr til suðurs.
Baðherbergi er með baðkari með sturtutækjum, upphengdu salerni, handklæðaofni og góðri innréttingu. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Þvottahús er með lítilli innréttingu og flísum á gólfi. Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla sem getur nýst sem þriðja herbergi.
Sameiginleg geymsla fyrir tvær íbúðir er á jarðhæð.

- Íbúðin er í barnvænu hverfi, stutt er í leik- og grunnskóla og útivistarsvæðin við Hamra og Kjarnaskóg eru í göngufæri.
- Stór suðurverönd. 
- Geymsluskúr er á pallinum.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Kasa fasteignir
69.900.000 kr.718 þ./m²
+98,6% á 8 árum
26. júní 2018Fyrsta sala
35.200.000 kr.361 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mýrartún 22

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð97,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.718 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2282256Fasteignamat61.950.000 kr.Brunabótamat51.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑