fasteignasölur.is
Rjúpufell 35
Opið hús 28. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 29

Um eignina

Vel skipulögð og björt 108,9 fm. 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli með sérmerktu bílastæði og sólpalli í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Rjúpufell 35. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, afþreyingu, verslanir, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og garðskála. 
Eignin er laus við kaupsamning.


Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 108,9 fm þar af er geymsla 6,7 fm, garðskálinn 7,5 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: með parketi á gólfi. 
Eldhús: snyrtileg innrétting, flísar á milli skápa, flísalagt gólf, ísskápur getur fylgt með.
Þvottahús: innangengt úr eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Stofa: rúmgóð og björt með nýlegu parketi, úr stofunni er gengið inn í garðskála. Úr garðskálanum er gengið inn á  girtan sólpall.
Hjónaherbergi: með rúmgott skápapláss og nýlegu parketi.
Herbergi I: nýlegt parket, fataskápur.
Herbergi II: nýlegt parket, fataskápur.
Baðherbergi: snyrtileg innrétting, sturta, handklæaðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla: er í sameign. 6,7 fm.

Hver íbúð hefur merkt stæði, en það er ekki þinglýst eign heldur hefur það verið ákvarðað af húsfélaginu.
Snyrtileg sameign og hjólageymslur.
Eignarekstur sér um húsafélagið. 
Íbúðin er notaleg, björt, vel skipulögð og vel staðsett. Stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði, verslanir og aðra þjónustu. 


Nánari upplýsingar veita:
Kristín María Stefánsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða kristin@trausti.is
Katarzyna Kleinschmidt, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða katarzyna@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
67.500.000 kr.620 þ./m²
+40,6% á 4 árum
23. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
48.000.000 kr.441 þ./m²
+123,3% á 10 árum
3. janúar 2012Fyrsta sala
21.500.000 kr.212 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Rjúpufell 35

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundFjölbýlishúsStærð108,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
67.500.000 kr.620 þ./m²
Byggingarár1974InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2053043Fasteignamat65.300.000 kr.Brunabótamat58.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑