fasteignasölur.is
17. Júnítorg 3
1 af 21

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð á annari hæð með suðvestursvölum. Íbúðin er skráð 75,6 fermetra íbúð í vönduðu og vel byggðu álklæddu fjölbýlishúsi með lyftu, fyrir 50 ára og eldri, við 17. Júní torg í Garðabæ.  Íbúðin er í góðu ásigkomulagi. Stigagangur snyrtilegur, sameign og garður líka. Góð aðkoma er að húsinu, næg bílastæði og hitalagnir eru undir gangstéttum fyrir framan húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson lgfs, í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.

Nánari lýsing: Forstofa/hol, parketlagt og með fataskápum. Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, flísalögð sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Svefnherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg. Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum eikarinnréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á skjólsælar 6,8 fermetra svalir til suðvesturs. Sérgeymsla, í kjallara hússins er 7,0 fermetrar að stærð. Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara. Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu með fjölda malbikaðra bílastæða og gangstétta með hitalögnum undir. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson lgfs, í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.

17. Júnítorg 3

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð75,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
69.900.000 kr.925 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2274509Fasteignamat67.650.000 kr.Brunabótamat40.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑