fasteignasölur.is
Meistaravellir 35
Opið hús 28. okt. kl. 16:45–17:30
1 af 46

Um eignina

Opið hús miðvikudaginn 28. október frá kl 16:45 til 17:30 - Meistaravellir 35, 107 Reykjavík - íbúð 0201
 
Híbýli fasteignasala kynnir:   


Glæsileg, mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð á mjög eftirsóttum stað við Meistaravelli í Vesturbæ Reykjavíkur.
Eignin er skráð 109,5 fm. Þar af er sérgeymsla í kjallara 4,2 fm. Eigninni fylgir bílskúrsréttur í lengju norðan við húsið.

Bókið skoðun hjá ÓIafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala - s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Nánari lýsing:  
Forstofa:
Harðparket á gólfi, fataskápar, fatahengi. Við forstofu er leikhorn, þar væri einnig hægt að bæta við fataskápum. 
Eldhús: Hvít endurnýjuð innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, quartz borðplötur, borðkrókur, gluggi.
Borðstofa: Opin að hluta við eldhús og alveg opin við setustofu, harðparket á gólfi. 
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum, parket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í suður.

Svefnálma er með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Rennihurð sem lokar álmu af frá stofu og eldhúsi. Á svefnganginum er einnig skápur með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og vinnukrókur.
Herbergi 1
: Rúmgott hjónaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápar með innbyggðri lýsingu.
Herbergi 2:: Gott barnaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 3: Einnig gott barnaherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað á smekklegan hátt fyrir örfáum árum, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið og glerhlið að lofti, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski, quartz borðplötur, baklýstur spegill ofan við vask. 

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins. Sameiginleg hjóla & vagnageymsla er í kjallara.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla (4,2 fm) í kjallara hússins.

Viðhald/endurbætur
Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2017.
Neysluvatnslagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2020.
Raflagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2020.
Allar hurðir endurnýjaðar innan íbúðar.
Stóri glugginn í stofunni endurnýjaður 2024
Stigahús var málað og teppi endurnýjuð árið 2020
Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar á bílaplaninu fyrir Meistaravelli 31-35. 
Um 2006 voru skólplagnir fóðraðar undir húsinu. 
Árið 2022 var skolplögn fóðruð í húsinu nr 35.

Frábær staðsetning og barnvænt umhverfi - stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR. Öll helsta verslun og þjónusta í næsta nágrenni - göngufæri við miðborgina og Háskólann.
Melabúðin og sundlaug Vesturbæjar í allra næsta nágrenni. 


Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Híbýli
107.000.000 kr.977 þ./m²
+118,4% á 7 árum
11. júní 2019Fyrsta sala
49.000.000 kr.447 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Meistaravellir 35

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð109,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
107.000.000 kr.977 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2025806Fasteignamat83.250.000 kr.Brunabótamat54.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKringlunni 4-6, 103 ReykjavíkSími585-8800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑