fasteignasölur.is
Lækjarhjalli 32
Opið hús á morgun kl. 17:30–18:00
1 af 31

Um eignina

Björt og mjög vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, tveimur bílastæðum, sér afgirtur garður og verönd í tvíbýlishúsi byggðu árið 1990 í botnlangagötu við Lækjarhjalla í Kópavogi. Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu og í útivist í Kópavogsdalnum. Gengið inn að neðanverðu. Þak var yfirfarið og skipt um járn  

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 70,4 fm. og eru allir fermetrar innan eignarinnar. 
Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 68.750.000kr. 


Nánar um eignina
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Eldhús er opið við stofu með snyrtilegri hvítri innrétting og skápum, gott skápapláss, innbyggðuppþvottavél, ofn, gufugleypir, helluborð, rými fyrir borðstofuborð við hlið eldhúss og parket á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út í garð og verönd úr stofunni.
Sólskáli með flísum á gólfi. 
Þvottahús/geymsla með hvítri innréttingu og hvítum skápum, vaskur og flísar á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa, hvítri innréttingu með speglaskápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Bílastæði eru fyrir neðan húsið við inngang íbúðarinnar. 
Fallegur afgirtur garður í góðri rækt og stór timburverönd.
Mjög snyrtileg eign á frábærum og rólegum stað í Kópavogi. 

Þak var yfirfarið, skipt var um járn og nýjar þakrennur árið 2026. Verkið er á lokastigi. 
Húsið var sprunguviðgert árið 2026 og er verið að mála húsið að utan á kostnað seljanda. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
65.900.000 kr.936 þ./m²
+69,0% á 8 árum
25. október 2018Þinglýstur kaupsamningur
39.000.000 kr.554 þ./m²
+111,7% á 7 árum
27. maí 2011Fyrsta sala
18.420.000 kr.262 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lækjarhjalli 32

200 Kópavogur
TegundHæðStærð70,4 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
65.900.000 kr.936 þ./m²
Byggingarár1990InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2064139Fasteignamat68.450.000 kr.Brunabótamat50.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑