fasteignasölur.is
Kríuás 19
1 af 32

Um eignina

Rúmgóð og björt 3ja herberbergja útsýnisíbúð með sér inngangi á 3. hæð (efstu) með rúmgóðum svölum til vesturs/norðvesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Kríuás 19 í Hafnarfirði. Mögulegt er að færa eldhúsið og gera aukaherbergi í eigninni. Einstaklega glæsilegt útsýni er úr eigninni. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Nýjar innihurðir og útidyrahurð.  Nýtt parket er á íbúðinni. Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð ásamt vagnageymslu og hjólageymslu. Íbúðin er í útleigu í dag. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 97,2 fm. og þar af er geymsla 2,9 fm. 

Nánari lýsing:

Forstofa rúmgóð með innbyggðum skáp og flísum á gólfi. 
Gangur með parket á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Mikið útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Eldhús er opið að hluta við stofu með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting, helluborð, með tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar á milli skápa og eldhúskrókur með fallegum eldhúsglugga.  Mögulegt er að færa eldhúsið og gera auka herbergi. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi með skáp pg parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottaherbergi mjög rúmgott, vaskur og auðvelt að nýta hluta þess sem geymslu. Flísar á gólfi. 

Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg og er staðsett á jarðhæð. 

Glæsilegt útsýni er úr eigninni út Reykjanesið, Keili, Akranesi, Snæfellsjökli, Esjunni, út á sundin og víðar og er húsið er staðsett á jaðarlóð. 
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Í sumar hafa staðið yfir viðhaldsframkvæmdir við húsið sem nú eru á lokametrunum. Ráðgjafi var fenginn til að meta ástand hússins og farið var í þær framkvæmdir sem hann mælti með. Unnið hefur verið að smávægilegum múrviðgerðum, skipt um þá glugga sem voru komnir á tíma, og húsið hefur verið sílanborið og málað. Framkvæmdirnar eru nú við það að ljúka og seljandi greiðir kostnaðinn við þær að fullu.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum (Tjarnarás og Stekkjarás). Stutt í útivistarparadís, sem liggur við bakgarðinn, með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Hvaleyrarvatni, Ástjörn og víðar.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.900.000 kr.719 þ./m²
+48,7% á 6 árum
14. apríl 2021Þinglýstur kaupsamningur
47.000.000 kr.484 þ./m²
+70,9% á 7 árum
10. júní 2014Fyrsta sala
27.500.000 kr.283 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kríuás 19

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð97,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.719 þ./m²
Byggingarár2002InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2248962Fasteignamat69.250.000 kr.Brunabótamat54.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑