fasteignasölur.is
Álfhólsvegur 47
Opið hús 29. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 37

Um eignina

Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali og LF-fasteignasala kynna:

Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja neðri sérhæð í tvíbýli auk bílskúrs á frábærum og fjölskylduvænum stað við Álfhólsveg 47 í Kópavogi. Samtals er eignin skráð 152,8 fm. en þar af er bílskúr 25,5 fm. Nýtt baðherbergi 2023 auk nýrra gólfefna í allri íbúðinni og nýrra skápa í öll svefnherbergi. Allir ofnar nema 1 endurnýjaðir í íbúð 2023-26. Ný tæki í eldhúsi 2023-26. Leyfi er fyrir L-laga sólpalli.

Eignin hefur fengið miklar endurbætur að innan og utan síðustu ár, sjá lista neðst í lýsingu.

Anddyri er flísalagt.
Stofa er opin og björt. Parket á gólfi. Útgengi út í garð þar sem áður var L-laga sólpallur. Leyfi er fyrir að byggja þar sólpall aftur. Fallegt útsýni úr stofuglugga.
Eldhús með góðri innréttingu. Nýtt helluborð 2025. Innbyggð uppþvottavél, vifta og ofn í vinnuhæð sett upp 2023. Nýr eldhúsbekkur og eldhúsvaskur 2026. Flísar milli skápa. Parket á gólfi.
Baðherbergi var uppgert 2023. Flísalagt í hólf og gólf. Falleg skápainnrétting. Baðkar með sturtu. Opnanlegur gluggi. Handklæðaofn og venjulegur ofn.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Herbergi II er parketlagt. Góðir skápar.
Herbergi III er parketlagt. Góðir skápar.
Herbergi IV er við hlið stofu. Parket á gólfi. Góðir skápar.
Þvottahús er við hlið eldhúss.
Geymsla með glugga er við hlið íbúðar með sérinngang.
Bílskúr er skáður 25,5 fm. Málaður að utan 2026. Nýtt þak á bílskúr 2023. Fyrir afhendingu verð skipt um 2 glugga og hliðarhurð. Möguleiki að útbúa útleigueiningu.
5 fm. geymluskúr var settur í garð 2025, einangrað og flísalagt gólf.

Framkvæmdir síðustu ára skv. upplýsingum frá seljanda:
2026:
- Drenað allan hring kringum húsið.
- Skipt um skólplagnir og brunn.
- Hitagrind endurnýjuð.
- Inntak fyrir kalt vatn endurnýjað.
- Jarðvegsskipt og lóð jöfnuð umhverfis hús, tilbúið fyrir torf og pall.
- Nýjar lagnir lagðar fyrir neysluvatn en ekki búið að tengja.
- Sólpallur við húsið var rifinn þegar skipt var um lagnir. Pallurinn var séreign íbúðarinnar. Mætti byggja nýjan.
- Gluggar málaðir að utanverðu.
- Ofnar í herbergjum endurnýjaðir.

2023:
- Nýir sólbekkir úr akrýlsteini frá Fanntófell.
- Ný gólfefni, flísar í anddyri og baðherbergi, parket á öðrum rýmum.
- Allt baðherbergið endurnýjað nema neysluvatnslagnir.
- Nýir fataskápar í öll herbergi.
- Rafmagn endurnýjað í allri íbúð nema í eldhúsi og rafmagnstöflu.
- Skipt um þak á bílskúr.
- Hluti ofna endurnýjaður.

Framkvæmdir sem standa yfir og verður lokið fyrir afhendingu skv. seljanda:
- Skipt um hliðarhurð og 2 glugga á bílskúr.
- Skipt um hurð og glugga á kyndiklefa.
- Gluggar á efri hæð hússins málaðir og útidyr beggja íbúða.
- Hellulagt verður fyrir framan húsið þar sem steypt stétt var áður.


Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu styrmir@lf-fasteignasala.is.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lindin
111.900.000 kr.732 þ./m²
+36,8% á 4 árum
16. desember 2022Fyrsta sala
81.800.000 kr.535 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Álfhólsvegur 47

200 Kópavogur
TegundHæðStærð152,8 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
111.900.000 kr.732 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2058112Fasteignamat98.450.000 kr.Brunabótamat79.320.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÚtkaupstaðarbraut 1, 735Sími893-1319

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑