Um eignina
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hamraborg 18 í hjarta Kópavogs. Úr íbúðinni er fallegt útsýni yfir sjóinn, að Perlunni og til fjalla, og frá stofu er útgengt á stórar svalir. Baðherbergið hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt og íbúðinni fylgir aðgengi að sameiginlegri bílageymslu undir húsinu. Öll helsta þjónusta, verslanir, sundlaug, heilsugæsla, banki, leiskóli og skólar, menning og almenningssamgöngur eru í nokkra mínútna göngufæri.
Stærð eignarinnar er 76,90 fermetrar samkvæmt skráningu HMS.
Aðal sölupunktar:
- 4. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni
- Stórar svalir út frá stofu
- Endurnýjað baðherbergi með baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofni.
- Tvö svefnherbergi og gott skápapláss í holi
- Björt stofa og borðstofa með stórum gluggum
- Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi
- Aðgengi að sameiginlegri bílageymslu undir húsinu
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign
- Krónan, Salurinn, Gerðarsafn og skiptistöð Strætó í göngufjarlægð.
Nánari lýsing:
Forstofa: Fatahengi og skóhilla.
Hol: Stórir fataskápar og harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í samliggjandi rými með stórum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengt er á stórar svalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél og gluggi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og glugga með útsýni.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og gluggi með útsýni til fjalla.
Baðherbergi: Endurnýjað með stórum flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu og gleri, vegghengt salerni, innrétting með skúffum, spegill með lýsingu, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Hellulagður og gróinn garður á milli húsa. Bílageymsla undir húsinu.
Sameginlegar hleðslustöðvar eru í bílakjallara.
Húsið: Hamraborg 18 er steinsteypt lyftuhús byggt 1973.
Staðsetning: Hamraborg er miðbær Kópavogs. Krónan er við hornið og í göngufæri eru Salurinn, Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs, Sundlaug Kópavogs, leikskólar og grunnskóli. Strætó er í Hamraborg og greið leið er í allar áttir á höfuðborgarsvæðinu.
Björt og vel skipulögð íbúð með útsýni á einum þægilegasta stað Kópavogs. Hentar vel fyrstu kaupendum, pörum og þeim sem vilja minnka við sig og hafa alla þjónustu við höndina.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hamraborg 18
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















