fasteignasölur.is
Laufrimi 16
Opið hús 29. okt. kl. 18:00–18:30
1 af 22

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir vel staðsetta 4ra herbergja enda íbúð á 3. hæð í Rimahverfi. Íbúðin er með sérinngangi af svölum. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 100,4 fm. 
Nánari upplýsingar hjá Kristínu í síma 837-1177 eða á kristin@trausti.is  


Nánar um eignina:
Anddyri með fatahengi. Flísar á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu og góðum borðkrók. Helluboð, bakaraofn og vifta. Tengi fyrir uppþvottavél. Flísar milli efri og neðri skápa. Dúkur á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Rúmgóð og björt stofa með dúk á gólfi. Útgengt á svalir úr stofu.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi I með dúk á gólfi.
Barnaherbergi II með dúk á gólfi.
Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu. Baðkar, handlaug og salerni. Tengi fyrir þvottavél. Flísar við baðkar. Dúkur á gólfi.
Sérgeymsla með glugga innan eignar.
Vagna- og hjólageymsla í sameign.
Sérgeymsla í sameign.

Viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:
Skipt um útidyrahurð sumar 2026
Svalagólf lagað nýlega
Hús málað að utan nýlega ásamt því að skipta um þak á ruslageymslu og sett ný hurð
Virkt húsfélag er í húsinu og hefur það fengið gott viðhald í gegnum tíðinna

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í þessu rótgróna og fallega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Laufrimi 16

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð100,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.746 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2226467Fasteignamat73.700.000 kr.Brunabótamat54.445.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑