fasteignasölur.is
Villa í Pilar de La Horadada Spánn
Nýtt
1 af 9

Um eignina

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: ***STÓRGLÆSILEGT 344 m2 EINBÝLISHÚS Á 618 m2 EINKALÓÐ VIÐ HIGUERICAS-STRÖNDINA***
Glæsileg nýbyggð einbýlisvilla aðeins 100 metra frá Higuericas-ströndinni
Einstaklega glæsileg og vönduð nýbyggð villa á frábærum stað í Torre de la Horadada, aðeins um 100 metra frá hinni fallegu Higuericas-strönd við Miðjarðarhafið.
Skoðaðu fleiri eignir á Novus Habitat
ALLAR NÁNARI UPPL. VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717- SVAVAR@FSTORG.IS

Húsið er 344 m² að stærð og stendur á rúmgóðri 618 m² einkalóð. Hér er um að ræða veglega og nútímalega eign þar sem mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang, rúmgóð rými og þægindi.

Nánari lýsing:
Villan skiptist meðal annars í fimm svefnherbergi, þar af eru tvö með sérbaðherbergi og fataherbergi.
Eldhúsið er opið inn í borðstofu og stofu og verður innréttað með vönduðum innréttingum og efnisvali sem eigandi getur haft áhrif á. Rafmagnstæki fylgja með.
Stórir gluggar setja mikinn svip á alrýmið og hleypa ríkulegri dagsbirtu inn í húsið. Úr alrýminu er jafnframt bein útgengt að einkasundlaug og fullfrágengnum garði, sem mynda skemmtilegt útisvæði við húsið.
Loftkæling og hitun um loftstokka er innifalin. Við hönnun og frágang er lögð áhersla á vönduð efni, nútímalegt útlit og góð þægindi, þannig að eignin henti jafnt til heilsársbúsetu og sem glæsilegt sumarhús á Spáni.
Við húsið er yfirbyggt stæði fyrir tvo bíla, auk stæðis fyrir þriðja bíl.

Frábær staðsetning við ströndina
Staðsetningin er einn af stóru kostum eignarinnar. Aðeins um 100 metrar eru niður á Higuericas-strönd, þar sem hægt er að njóta Miðjarðarhafsins, strandgöngunnar og fjölbreyttrar afþreyingar á borð við sund, siglingar, brimbretti og snorkl.

Golfáhugafólk þarf heldur ekki að leita langt en Lo Romero Golf er aðeins í um 8 km fjarlægð.
Smábátahöfnin í Torre de la Horadada er í um fimm mínútna fjarlægð og um tíu mínútur eru að höfnum San Pedro del Pinatar. Á svæðinu er jafnframt gott úrval veitingastaða þar sem meðal annars má njóta fjölbreyttrar Miðjarðarhafsmatargerðar.

Stutt í alla þjónustu:
Pilar de la Horadada er í aðeins um 1 km fjarlægð. Þar er öll helsta þjónusta til staðar, meðal annars verslanir, skólar, heilsugæsla og apótek.
Góðar samgöngur eru frá svæðinu og stutt er inn á AP-7 hraðbrautina.

Helstu vegalengdir:
Higuericas-strönd – ca. 100 m
Pilar de la Horadada – ca. 1 km
Lo Romero Golf – ca. 8 km
Dos Mares verslunarmiðstöðin – ca. 5 mín. akstur
La Zenia Boulevard – ca. 15 mín. akstur
Murcia/Corvera flugvöllur – ca. 44 km
Alicante flugvöllur – ca. 75 km
Stórglæsileg eign á eftirsóttum stað fyrir þá sem vilja rúmgóða og vandaða villu með einkasundlaug í aðeins örfárra mínútna göngufjarlægð frá einni af fallegri ströndum svæðisins.
ALLAR NÁNARI UPPL. VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717- SVAVAR@FSTORG.IS
 

Villa í Pilar de La Horadada Spánn

1000 Útlönd - Annað
TegundRað-/parhúsStærð0 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
497.000.000 kr.
FasteignanúmerF9996666
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Allar 9 myndir

Upp ↑