fasteignasölur.is
Þorraholt 1
1 af 28

Um eignina

Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða 83,2fm, 3ja herbergja íbúð á 1. hæð að Þorraholti 1, 210 Garðabær. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara matshlutans 03, merkt 0014, birt stærð 8,3 fm. Íbúðinni fylgir sér stæði í bílakjallara merkt 03 B07. Íbúð þessi er með sérinngangi. Eignin skiptist í forstofu, Rúmgott og bjart alrými með samliggjandi eldhúsi, borðstofu og stofu, 2 svefnherbergi með skápum, baðherbergi með "walk in sturtu" ásamt sérgeymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Snjóbræðsla er lögð í helstu gönguleiðum utan við hús. Áhersla er lögð á fallegt útlit húss þar sem sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Frábær staðsetning þar sem óhætt er að segja íbúar Hnoðraholtsins muni njóta þess besta sem Garðabær hefur uppá að bjóða í fallegu umhverfi og góðri þjónustu nærri helstu náttúruperlum bæjarins.

Hér má sjá frkari upplýsingar um bygginguna og innréttingar


Eignin Þorraholt 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-3228, birt stærð 83.2 fm, þar af er sér geymsla í kjallara merkt 03 0006, skráð 8,5fm. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

Nánari lýsing: 
Forstofa:
Gengið er inn í forstofu um sérinngang. Flísalögð með upphengdri fataslá og fataskáp.
Alrými: Rúmgott og bjart með samliggjandi eldhúsi og stofu.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum. Gott geymslu og vinnupláss. Skúffur eru með ljúflokun. Borðplata er Quartz Lema White, 20mm. Heimilistæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Helluborð er innfellt í borðplötu og vaskur er undirlímdur. Háfur er staðsettur yfir eyju. Auk þessa afhendast íbúðir með uppþvottavél og ísskáp frá AEG sem er innfellt í eldhúsinnréttingu. Blöndunartæki í eldhúsi eru af gerðinni Grohe. Eldhús opið og í góðri tengingu við stofu.
Stofa: Rúmgóð stofa og borðstofa, samliggjandi eldhúsi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Tveir veggir baðherbergis eru flísalagðir við sturtu að horni og upp í loft. Gólf eru flísalögð með sömu flísum og fara á veggi. Innrétting er sérsmíðuð úr slitsterku harðplast efni í ljósum lit í ytra byrði en innra byrði úr dökkgráu harðplasti. Skúffur eru með ljúflokun. Borðplata er Quartz Lema White, 20mm. Handlaug er hringlótt og liggur á borðplötu. Handlaugartæki eru frá Grohe og sturtutæki eru innbyggð frá Hansgrohe.

Geymsla: Sérmerkt geymsla í kjallara.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Bílageymslan er búnar samtengdu brunavarnakerfi. Bílgeymsluhurðir eru með fjarstýrðum opnurum. Fyrir hleðslu rafbíla eru tryggðar lagnaleiðir frá tæknirými í bílakjallara og að öllum bílastæðum.

Byggingaraðili hússins er Reir Verk ehf. Reir Verk ehf. er öflugt byggingarfélag með áralanga reynslu, sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.

Gönguleið í kring um Vífilstaðavatn er vinsæl ásamt Heiðmörk með fjölda göngu og skógarstíga. Í deiluskipulagi er gert ráð fyrir leikskóla skáhallt á móti byggingunum. Nærri eru svo Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskóli Garðabæjar. Öflugt íþróttastarf er í bænum og er Stjarnan með félagsstarf fyrir bæði börn og fullorðna þar sem er fjöldi deilda bæði í einstaklings- og hópíþróttum.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Þorraholt 1

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð83,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.960 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2533228Fasteignamat76.300.000 kr.Brunabótamat63.160.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑