fasteignasölur.is
Perla Inv. - Spænskt sveitasetur með ólífurækt
Nýtt
1 af 58

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Spænskt sveitasetur með ólífurækt í Campo de Crevillente, Alicante

Falleg finca til sölu í rólegu og fallegu sveitaumhverfi í Campo de Crevillente í Alicante-héraði. Húsið er 186,37 m² að stærð og stendur á rúmgóðri 2.514 m² lóð. Það býður upp á fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi og tvö eldhús, þar af eitt innandyra og annað sumareldhús með glerhurðum sem hægt er að opna alveg yfir sumartímann, tilvalið til að njóta sólarinnar og slaka á á veröndinni. Útisvæðið er með einkasundlaug sem var endurgerð árið 2026, 20,94 m² verönd, útigeymslu og yfirbyggðum bílastæðum fyrir tvo bíla.

Með eigninni fylgir akur með ólífutrjám og fjölbreyttum ávaxtatrjám, þar á meðal appelsínu-, sítrónu- og mandarínutrjám, möndlu-, granatepla-, fíkju- og nispero-trjám auk lárviðar. Ólífuuppskeran var um 300 kg á síðasta ári, sem skilaði um 40 lítrum af ólífuolíu. Sólarsellur voru settar upp í ágúst 2025 og ljósleiðari er í húsinu. Utanhússveggir hafa verið endurnýjaðir og málaðir með vatnsfráhrindandi málningu með tíu ára ábyrgð.

Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldur og alla sem dreymir um að njóta spænska sveitalífsins, með rúmgóðu útisvæði, einkasundlaug og eigin ólífu- og ávaxtatrjám.

Staðsetningin sameinar rólegt sveitalíf og gott aðgengi að þjónustu. Aðeins fimm mínútna akstur er inn í Crevillente, um 25 mínútur á Alicante-flugvöll og um 30 mínútur á strendur og til Alicante, Torrevieja og Murcia. Í nágrenninu eru falleg fjöll og fjölmargar gönguleiðir. Hverfið er rólegt og öruggt, með mörgum íbúum sem búa þar allt árið.

Meirihluti húsgagna og innbús getur fylgt með eigninni samkvæmt samkomulagi.

Endilega skoðið myndbandið hér að neðan til að fá betri tilfinningu fyrir eigninni.

Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar eða til að bóka skoðun á eigninni!

Hafðu endilega samband til að fá frekari upplýsingar um þessa eign.Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar - https://perlainvest.com/eign/8180/spaenskt-sveitasetur-med-olifuraekt-i-campo-de-crevillente-alicante/                        

Ref: V883

Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Spænskt sveitasetur með ólífurækt

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundEinbýlishúsStærð196 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.3
53.100.000 kr.271 þ./m²
Byggingarár1984FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 58 myndir

Upp ↑