fasteignasölur.is
17. Júnítorg 3
1 af 20

Um eignina

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja 75,6 fermetra íbúð á 2. hæð með suðvestursvölum í vönduðu og vel byggðu álklæddu fjölbýlishúsi með lyftu, fyrir 50 ára og eldri, við 17. Júní torg í Garðabæ.  Góð aðkoma er að húsinu, næg bílastæði og hitalagnir eru undir gangstéttum fyrir framan húsið.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.


Lýsing eignar:
Forstofa/hol, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, flísalögð sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Svefnherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum eikarinnréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á skjólsælar 6,8 fermetra svalir til suðvesturs.

Sérgeymsla, í kjallara hússins er 7,0 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara.

Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið.
Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu með fjölda malbikaðra bílastæða og gangstétta með hitalögnum undir. Baklóð er tyrfð og með göngustígum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Sjálandinu í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

17. Júnítorg 3

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð75,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
69.900.000 kr.925 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2274509Fasteignamat67.650.000 kr.Brunabótamat41.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÓðinsgata 4, 101 ReykjavíkSími570-4500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑