fasteignasölur.is
Asaból 9
1 af 8

Um eignina

Aldir fasteignasala og Davíð Matthíasson, lögg. fasteignasali – 898-1713 / david@aldirfasteignir.is kynna:

Glæsilegt og einstaklega vel staðsett hesthús í Asabóli 9 á félagssvæð Fáks í Víðidal.

✅ Einstök fjölskyldueining.
✅ Rúmgóð og notarleg kaffistofa.
✅ Breiður fóðurgangur
✅ Gott aðgengi bæði fyrir hesta og menn.
✅ Frábær aðkoma fyrir hey og spæni.

Nánari lýsing:
Hesthúsið er innréttað fyrir 5 hesta, fimm einshestastíur og ein þeirra er innréttuð sem graðhestastía.
Góður fóðurgangur með hita í gólfi.
Hnakkageymsla er rúmgóð og  innangengt á salerni.
Hlaðan er mjög rúmgóð og er frábær aðstaða til þess að taka inn hey og spæni. Mjög gott svæði fyrir aftan hesthúsið þar sem þetta er endalengja.
Kaffistofa er fallega innréttuð með þakkgluggum í lofti og stórum glugga í niður í hesthúsrýmið. Kaffistofan er með eldhúsi og fallegri innréttingu, notalegri setustofu.
Rými er undir súðinni sem er búið að innrétta undir gott geymslurými.
Gerði hefur verið skipt niður og hefur hver sinn hluta til einkanota.
Hesthús í sérflokki á einum besta stað í Víðidal.

Staðsetning:
Hesthús þetta er á einum besta stað í Viðidal. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 898-1713 / david@aldirfasteignir.is

Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Asaból 9

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundHesthúsStærð77 m²Herbergi1Baðherb.1
28.900.000 kr.375 þ./m²
Byggingarár1988FasteignanúmerF2355625Fasteignamat16.700.000 kr.Brunabótamat25.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑