fasteignasölur.is
Skútuvogur 10
1 af 15

Um eignina

Eignaland og Jens Magnús, löggiltur fasteignasali, kynna Skútuvog 10E, 104 Reykjavík.
Möguleiki er á að kaupa eða leigja eignina.
Iðnaðarhúsnæði á vinsælum stað í Reykjavík. Eignin er skráð samkvæmt HMS 374,9 fm og var byggð árið 1987 úr steinsteypu.
Neðri hæðin er nánast eitt stórt rými, fyrir utan afmarkað afgreiðslurými. Stór innkeyrsluhurð er inn í salinn. Inngangur er að framanverðu og þaðan er stigi upp á efri hæðina þar sem skrifstofurými er staðsett.
Neðri hæðin er skráð 256 fm og efri hæðin 119 fm.

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða á netfanginu magnus@eignaland.is

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Góður vinnusalur með innkeyrsluhurð og góðri lofthæð. Búið er að koma fyrir litlu afgreiðslurými á hæðinni, en veggirnir eru léttir og því auðvelt að breyta skipulaginu. Salernisaðstaða er á hæðinni.
Efri hæð:
Skiptist í fallegt og bjart skrifstofurými með dúk á gólfi. Þar er eldhúskrókur með innréttingu, vaski og ísskáp. Þrjár lokaðar skrifstofur eru á hæðinni ásamt rúmgóðu fundarherbergi. Einnig er þar rúmgóð móttaka og salernisaðstaða.

Eignin hefur verið endurnýjuð töluvert á undanförnum árum að utan, eins og t.d þak, máling að utan og skipt um gler. Að innan hefur verið farið í neisluvatn, ný ledljós í vinslusal og bæði salerni endurnýjuð. Nánar framkvæmdir í söluyfirliti.
Töluvert er af bílastæðum á lóðinni.
Áhugaverð eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skútuvogur 10

104 Reykjavík · Vogar
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð374,9 m²
175.000.000 kr.467 þ./m²
Byggingarár1987InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2020928Fasteignamat121.900.000 kr.Brunabótamat146.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑