fasteignasölur.is
Laugarnesvegur 89
Nýtt
1 af 37

Um eignina

Miklaborg kynnir: Tveggja til þriggja herberga íbúð á fjórðu hæð í lyftu húsi við Laugarnesveg 89. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, vinnuherbergi, geymslu og bílastæði í kjallara. Laugardalurinn er í næsta nágrenni með allt sem honum fylgir, gott útivistarsvæði, skautasvellið, húsdýra og grasagarðurinn og sundlaugin. Stutt í alla helstu þjónustu.


Náðu í gögn um íbúðina hér

Bókaðu skoðun: Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is


Nánari lýsing eignar.

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, fataskáp og skóskáp. Svefnherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskápum. Eldhús með grárri innréttingu og ljósri borðplötu, ofni, helluborði, háf og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með parketi á gólfi og útgengt út á svalir til suðurs með svalalokun. búið er að gera auka herbergi þar sem borstofa er teiknuð. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu með speglaskáp. Inn af baðherbergi er þvottahús þar sem vélar eru í vinnuhæð með skúffum fyrir neðan. Sér geymsla íbúðar er á jarðhæð. Stæði í bílakjallara fylgir eigninni, búið er að leggja fyrir bílahleðslu í stæðið.

 

Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Laugarnesvegur 89

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð87,4 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
77.700.000 kr.889 þ./m²
Byggingarár2001InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2256145Fasteignamat81.200.000 kr.Brunabótamat57.340.000 kr.
Skráð hjá
Óskar Sæmann AxelssonLöggiltur fasteignasali691-2312 · osa@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑