fasteignasölur.is
Miðbraut 5
1 af 22

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Dalabyggð kynna:

Mikið endurnýjað parhús á Búðardal með aukaíbúð og fallegu útsýni út á Hvammsfjörð.

Eignin er steinsteypt hús, byggt 1943 og skiptist í 122,5 fm einbýli með 22,6 fm viðbyggingu sem inniheldur litla stúdíóíbúð með gestasnyrtingu ásamt eldhúsi/stofu/svefnherbergi í einu rými og er með sérinngangi.

Í kjallara undir eldhúsi/þvottahúsi/forstofu er góður kjallari/geymsla með inntökum fyrir rafmagn, heitt og kalt vatn. Þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara, kjósi menn að nýta forstofuherbergið sem herbergi en ekki þvottahús.

Stórt bílastæði, góður garður bæði að framan og aftan við húsið, stór verönd að framan.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Húsið hefur fengið töluverðar endurbætur gegnum árin, nánari upplýsingar fást með að panta söluyfirlit frá fasteignasala.


Nánari lýsing:
Gegnið er upp einar tröppur á rúmgóða verönd og þaðan undir skyggni og inn í forstofuna. Innaf forsofunni er herbergi sem í dag er notað sem þvottahús. Eldhúsið er í sér rými með miklu útsýni út á Hvammfjörð. Komið er svo inn á svefnherbergisgang úr forstofunni og á norðurhlið eru tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi með sturtu. Innst á norðurhlið er herbergi sem nýtt er í dag sem fataherbergi. Er það svo samtengt einu svefnherbergi til viðbótar sem liggur við enda gangs og yfir að suðurhlið hússins. Í suðurhliðinni er svo stór stofa/borðstofa. Farið er einnig úr forstofu um brattan stiga niður í kjallar hússins. Einnig er hægt að komast í hann utanfrá um sér stiga niður og útihurð. Þar niðri eru inntök allra veita ásamt því að gott geymslupláss er og hægt að hafa þvottavél og þurrkara þar niðri. Á bakhlið hússins er viðbygging sem er í dag nýtt sem stúdíóíbúð með sérinngangi, eldhúskrók og salerni (ekki sturta). 
Bílastæðið er rúmgott, fallegur garður með snúrum á framhlið og trjágróðri og grasi á bakhlið.

Eignin er einstaklega vel staðfestt á Búðardal, mikið útsýni yfir hafnarsvæðið og stutt í skóla- og leikskóla (yfir götuna) og íþróttavöllurinn sést út um eldhúsgluggann.

Um er að ræða góða eign sem fengið hefur mikið og gott viðhald, margt stórt búið í endurnýjun en eftir að uppfæra innihurðir, hluta gólfefna, aðra hlið hússins varðandi ofna og lagnir svo fátt eitt sé nefnt.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

 

Miðbraut 5

370 Búðardalur
TegundRað-/parhúsStærð145,1 m²Herbergi6Svefnherb.3Baðherb.1
39.900.000 kr.275 þ./m²
Byggingarár1943InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2117272Fasteignamat26.500.000 kr.Brunabótamat67.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑