fasteignasölur.is
Klapparhólsbraut 7
1 af 34

Um eignina

Miðbær fasteignasala kynnir eignina Klapparhólsbraut 7 í Öndverðarnesi. Mikið endurnýjað og fallegt ca. 87 fm sumarhús sem var stækkað árið 2020. 

Húsið stendur á skógi vaxinni lóð, alls 5.867 fm í hinu vinsæla Múraralandi í Öndverðanesi. Leigulóð en leigusamningur er tímalaus.
Eignin skiptist í stofu, eldhús, svefnloft, baðherbergi, hjónaálmu og geymsluskúr.
Lítið fallegt dúkkuhús er á pallinum sem er stór og sólríkur.
Pallurinn er umhverfis húsið og þá er heitur pottur vestan við.
Gestaálma byggð 2020 sem er með gólfhita.
Inntaksgeymsla við húsið með þvottaaðstöðu.
Bílskúr fyrir golfbíll er við bílastæði.


Nánari lýsing.
Gengið er inn í opið rými sem samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu og eldhúsi. Fallega byggður arinn er í stofu.
Baðherbergi með sturtu. Við eldhúsi er gengið upp stiga uppá svefnloft. 
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Húsið er samkvæmt fasteignamati 51 fm ásamt 5 fm geymslu og skráð þannig. Ekki liggja fyrir samþykktar teikningar af 23 fm viðbyggingu og 13 fm bílskúr.
Frábær staðsetning. Aðeins 45 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu og 10 mín frá Selfossi.
Öndverðarnes er lokað svæði, innhringihlið/fjarstýring og bundið slitlag er á götum innan þess. Sundlaug er á svæðinu sem eigendur hafa aðgang að. Hitaveita, kalt vatn og rafmagn.


Í Öndverðarnesi er frábær 18 holu golfvöllur í fallegu umhverfi með fögru útsýni í friðsælli íslenskri náttúru eins og hún gerist fegurst. Völlurinn býður upp á krefjandi upplifun fyrir alla kylfinga við frábærar aðstæður.  Á svæðinu er skemmtileg 16x8 metra sundlaug með heitum pottum. Laugin er eingöngu fyrir þá sem eiga sumarhús í Öndverðarnesi og gesti þeirra. Aðgangur er með sundlaugarkorti sem er innifalið er í lóðarleigunni.
Í Öndverðarnesi er staðarhaldari sem hefur umsjón með svæðinu þ.m.t. snjómokstur á götum þegar þess þarf, umsjón með sundlauginni og umsjón með gámasvæðinu sem tilheyrir Öndverðarnesi. 
 
Stutt að sækja frístundir s.s. veiði, golf og fallegar gönguleiðir og stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins.

Allar upplýsingar veitir Sigfús lgf í síma 8989979 eða sigfus@midbaer.is 

Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000.  Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 74.400. 
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Klapparhólsbraut 7

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð87,9 m²Baðherb.1
59.500.000 kr.677 þ./m²
Byggingarár1976InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2208568Fasteignamat32.650.000 kr.Brunabótamat26.240.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStarmýri 2, 108 ReykjavíkSími588-3300

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑