fasteignasölur.is
Skógarás 5
Opið hús 1. nóv. kl. 13:00–13:30
1 af 31

Um eignina

Heimir og Hrafnkell á Lind kynna þessa björtu og fallegu fimm herbergja endaíbúð á 2. hæð með góðum bílskúr og bílastæði. 
Eignin er mjög vel skipulögð og góð nýting á fermetrum. Fjögur svefnherbergi og gluggar á þrjá vegu.
Bjart og gott alrými með útgengt á góðar svalir til suðurs með útsýni.
Stutt í skóla, leikskóla, almenna þjónustu, útivist og ýmiss konar afþreyingu. 


Skipulag: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, fjögur herbergi og baðherbergi, þvottahús/geymsla og hol.

Nánari lýsing:
Anddyrið er með góðum fataskápum og fallegum flísum á gólfi.
Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með viðarparket á gólfi, útgengt á rúmgóðar suðursvalir. Nýjar screen gardinur fra Casalisa í stofu og eldhúsi fylgja.
Eldhúsið er með góðri innréttingu með miklu skápaplássi og vinnurými. AEG helluborð og ofn og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (núverandi vel fylgir ekki), tvöfaldur ísskápur sem getur fylgt og fallegar flísar á gólfi.
Gangur með parket á gólfi tengir saman herbergin og baðherbergi.
Herbergi I er mjög rúmgott með góðum fataskápum og parket á gólfi.
Herbergi II er með parket á gólfi og hefur ofn verið endurnýjaður.
Herbergi III er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi og hefur ofn verið endurnýjaður.
Herbergi IV er barnaherbergi með  parket á gólfi.
Baðherbergið var endurnýjað 2022 og er rúmgott með baðkari og sturtu, góð innrétting við vask, upphengt salerni. Flísalagt að mestu leiti. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús/geymsla er inn af anddyrinu sem rúmar tvær vélar. Nýlegar flísar á gólfi. 
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Bílskúrinn er skráður 24,7 fm. og er í sérstæðu húsi fyrir framn og er með nýlegri bílskúrshurð sem er með gönguhurð. Steypt málað gólf, heitt og kalt vatn, rafmagn, vaskur og gluggar. Gott milliloft er yfir hluta bílskúrs. Bílastæði fyrir framan.

Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 86.650.000-.

Birt stærð eignar er 135.2 fm þar af íbúð 110.5 fm og bílskúr 24.7 fm samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Íbúð merkt 202. Ekki er lyfta í húsinu. 

Tilheyrir heildarhúsinu Skógarás 1-5 sem er steypt fjöleignarhús á þremur hæðum.
Malbikað bílaplan er við húsið og á íbúð bílastæði fyrir framan bílskúr.
Lóðin er frágengin, steypt stétt með hitalögn liggur frá bílastæði að húsi.
Hlutfallstala í heildarhúsi Skógarás 5 er 18,9%


Viðhald og endurnýjun:
  • 2019 var húsið múrviðgert og málað að utan, þak var endurnýjað og skipt um hurðar og hluta glugga. Skipt um hurðir á ruslageymslu og hjólageymslu.
  • 2021 var stigagangur málaður.
  • 2022 var skipt um teppi í sameign og bílskúrshurð endurnýjuð.
  • 2022 var baðherbergið endurnýjað, forstofa, þvottahús og eldhús flísalagt
  • 2025 var skipt um þá glugga sem eftir var að skipta um ásamt svalahurðum og anddyrið málað.
  • 2026 voru nýjar screengardínur settar upp í stofu og eldhúsi. Skipt um skápahurðir í forstofu.

Skógarás 5, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 204-6564 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Skógarás 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-6564, birt stærð 135.2 fm.

Nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali / 8490672 / heimir@fastlind.is.
Hrafnkell P.H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 6908236 / hrafnkell@fastlind.is

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Skógarás 5

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð135,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
93.700.000 kr.693 þ./m²
Byggingarár1985InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2046564Fasteignamat85.500.000 kr.Brunabótamat65.960.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑