fasteignasölur.is
Skólagerði 64
1 af 36

Um eignina

Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vel staðsett 141,4 fm. parhús á tveimur hæðum í rólegu og eftirsóttu hverfi í Kópavogi, byggt árið 1964, byggður var sér 48,4 fm. bílskúr árið 2013. Samtals stærð er 189,9 fm. 

Eignin er á tveimur hæðum og státar af bjartri stofu, þremur svefnherbergjum, sér þvottahúsi og sér geymslu ásamt sérstæðum bílskúr sem byggður var árið 2013. Húsið hefur verið í góðu viðhaldi síðustu ár með áherslu á utanhússviðhald og endurbætur.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D

Nánari lýsing / neðri hæð:
Komið er inn í forstofu er með dökkum flísum á gólfi og fataskápum með speglum. Útidyrahurðin var nýlega pússuð upp og borið á hana. Innangengt er í alrými hússins frá forstofu. Hurð þar á milli.
Stofa og borðstofa er í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi og stórum gluggum sem veita góða birtu inn. Í stofu er arinn klæddur náttúrusteinum. og timburstigi upp á efri hæð hússins. 
Innangnegt er frá stofu/borðstofu inn í eldhús, þar er eldri viðar eldhús innrétting, flísar á gólfi og milli efri og neðri skápa. Þar er innbyggður bakaraofn, helluborð með viftu þar fyrir ofan og uppþvottavél þar við hlið.
Gluggi veitir birtu inn í rýmið og inn í borðkrók. Inn af borðkrók er sér þvottahús með flísum á gólfi og á hluta af veggjum, búið er að tengja og setja upp bæði salerni og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi er á þvotahúsinu sem og útgengi út að hellulagða verönd með skjólveggju. 

Efri hæð:
Á efri hæðinni er gangur með parket á gólfi þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymsla. Gluggi veitir góða birtu inn og skápar eru í hinum enda þess. 
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Herbergið var stækkað árið 1995, þegar byggt var yfir svalir, gluggar í þrjá áttir veita mikla og góða birtu inn.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og glugga. Hentar vel sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Svefnherbergi III er með parketi á gólfi og fataskáp. Gluggi veitir góða birtu inn.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og innrétting með handlaug. Handklæðaofn þar á móti. Opnalegur gluggi er inn á baðherbergi.
Sér geymsla á efri hæð, er inn af baðherbergi. Gefur ýmsa möguleika.

Bílskúr: Sérstæður og rúmgóður bílskúr, byggður árið 2013. Bílskúrinn er með stórum hurðum, gluggum og góðri lýsingu og hentar vel sem vinnuaðstaða eða fyrir bíla.

Parhúsið stendur á stórri lóð með afgirtri verönd og nýlegum bílskúr. Bílastæði eru fyrir framan bílskúr. Útgengi er á hellulagða verönd að aftanverðu hússins. Svæðið er afgirt með skjólveggjum.

Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Kópavogi, í rólegri götu nálægt skóla og þjónustu. Góð aðkoma er að húsinu með nægum bílastæðum.

Viðhald og framkvæmdir: Eignin virðist hafa fengið gott viðhald og farið hefur verið í ýmsar framkvæmdir á síðustu árum, sérstaklega á ytra byrði hússins. Helstu framkvæmdir sem vitað er um. Árið 2020 var húsið og gluggar þess málað að utan. Í mars síðastliðnum var þakskoðun gerð þar sem járn þaks var metið í fínu lagi; álfellum var skipt út, strompur klæddur og allar þakskrúfur endurnýjaðar. Fyrir afhendingu verður búið að grunna og mála þakið. Skipt hefur verið um rúður í stofu, sem voru upprunaleg, og settar voru þykkari rúður ásamt nýjum þéttilistum og glerlistum, og glugginn málaður. Útidyrahurð var líka nýlea pússuð upp og borið á hana.

Vakin er athygli á því að þar sem um dánarbú er að ræða hafa seljendur takmarkaðar upplýsingar um ástand hússins umfram það sem fram kemur í gögnum.

Nánari upplýsingar veita: 
Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500
af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-








 

Skólagerði 64

200 Kópavogur
TegundRað-/parhúsStærð189,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
129.900.000 kr.684 þ./m²
Byggingarár1964InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2065168Fasteignamat129.500.000 kr.Brunabótamat93.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑