fasteignasölur.is
Hrafnaborg 9 B
Opið hús 2. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 44

Um eignina

Andri Freyr Halldórsson lgfs. & LIND Fasteignasala kynna til sölu:
Nýlegt, bjart, fallegt & vel skipulagt 4 herbergja raðhús á einni hæð með tveimur baðherbergjum við Hrafnaborg 9 B, Vogum byggt 2025. 
Í húsinu er hiti í gólfum, sem er með wifi stýringu. Eldhús kemur með öllum tækjum þ.e.a.s. uppþvottavél, ísskáp, bakaraofni, helluborði og örbylgjuofni.

Allar nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 762-6162 eða andri@fastlind.is


*3 Svefnherbergi.
*Gólfsíðir gluggar í alrými.
*Hiti í gólfum.
*Aukin lofthæð.
*Eldhústæki fylgja.


Skráð stærð eignar skv. FMR er 119,6 fm, ath. geymsluskúr að framan er ekki inn í fermetrum. 

Eignin skiptist í:
Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, tvö baðherbergi og geymslu.


Nánari lýsing eignar:
Anddyri: með fataskáp.
Stofa & borðstofa: eru samliggjandi. Rýmið er með aukinni lofthæð, bjart og rúmgott og er samlyggjandi með eldhúsi. 
-Útgengt er úr stofu út á sérafnotareit, viðarpallur og gert er ráð fyrir heitum potti.
Eldhús: er með hvítri innréttingu með svartri borðblötu með vaski. Innbyggðum ísskáp, uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og örbylgjuofni. Spanhelluborð með veggháf fyrir ofan. 
Baðherbergi 1: er flísalagt hólf í gólf. Hvít, upphengd innrétting með vaski. "Walk-in" sturta með glerþili, upphengt salerni & baðkari. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi 2: er flísalagt hólf í gólf. Hvít, upphengd innrétting með vaski. "Walk-in" sturta með glerþili, upphengt salerni.
Hjónaherbergi: bjart & rúmgott, með góðum fataskáp.
Svefnherbergi 1: með fataskáp og výnilparketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: með fataskáp og výnilparketi á gólfi.
Geymsla: er inn af gangi. Blöndunartæki fyrir heitan pott eru staðsett í geymslu.
Verönd & garður: viðar pallur þar sem hefur verið gert ráð fyrir heitum potti.
Hjóla-/geymsluskúr: er ekki inni í skráðum fermetrum.
Malbikuð bílastæði fyrir framan hús.
-Hleðslustöð hefur verið komið fyrir


Gólfefni í alrými og svefnherbergjum er výnilparket. Í votrýmum eru ljósar 60x60 flísar.
-Húsið er klætt með álklæðningu og er því viðhaldslítið.

Hér má sjá hverfið og skipulagið: https://graenabyggd.is/


Allar nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 762-6162 eða andri@fastlind.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Hrafnaborg 9 B

190 Vogar
TegundRað-/parhúsStærð119,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.3
76.900.000 kr.643 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2531592Fasteignamat75.650.000 kr.Brunabótamat65.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑