Opið hús 3. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 32Um eignina
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Áshlíð 17 - 101
Um er að ræða góða og mikið endurnýjaða fimm herbergja neðri hæð í tvíbýli með stakstæðum bílskúr. Eigninni fylgir timburverönd vestan við hús með heitum potti, góð geymsla í sameign og geymsluskúr á baklóð.
Eignin er samtals 146,3 fm. að stærð, þar af er bílgeymsla skráð 21 fm.. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla í sameign og bílgeymsla.
Flísar sömu gerðar eru á allri íbúðinni með gólfhita.
Anddyri með fataskáp, af anddyri er eitt svefnherbergi og aðgengi niður í sameign. Í sameign hússins er sameignlegur fataskápur við enda gangs, sameiginlegt tæknirými og er þar einnig wc og sér geymsla sem er skráð 10,2 fm. að stærð.
Stofa er björt með útgengi út á verönd til vesturs.
Eldhús með góðu skápaplássi, bakaraofn í vinnuhæð, tækjaskápur, innbyggð uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp. Bekkplata sem nær alveg út í vegg sem hægt er að sitja við og er einnig mjög gott vinnurými.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú af þeim eru á gangi og eru þau öll rúmgóð með fataskápum og eitt herbergi er af anddyrinu og er minnsta herbergið.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk-in sturta með glerskilrúmi, lítil innrétting við vask ásamt speglaskáp, handklæðaofn, upphengt wc, innbyggður skápur og skúffur bak við hurð og opnanlegur gluggi á baði.
Þvottahús er inn af gangi með auka inngang um norðurhlið hússins. Góð innrétting með góðu vinnuplássi og vask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vaskur.
Verönd til vesturs með útgengi frá stofu með flísum á gólfi með flísastoðkerfi og timburskjólvegg. Heitur pottur er á verönd.
Geymsluskúr á baklóð fyrir aftan bílgeymslurnar tilheyrir íbúðinni. Hann er óeinangraður.
Bílgeymsla upphitaður með affalli af húsinu.
Annað:
- Eignin var mikið endurnýjuð árið 2020. Meðal annars var settur gólfhiti, gólfefni endurnýjuð, nýjar innihurðir, eldhús og baðherbergi endurnýjað.
Klóak endurnýjað út að húsvegg, rafmagn endurnýjað að mestu, loft tekið niður í stofurými og bætt við innfelldum ljósum. Gler endurnýjað að mestu.
- Þak endurnýjað/lagað 2025
- Húsið málað að utan 2018/2019
- Vatnslangir endurnýjaðar
- Ljósleiðari
- Sér öryggi fyrir bílhleðslu í töflu
- Geymsluskúr á lóð
- Verönd með heitum potti
- Stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Áshlíð 17 - 101
603 Akureyri (utan Glerár)
TegundHæðStærð146,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
87.900.000 kr.601 þ./m²
Byggingarár1966InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2144881Fasteignamat77.650.000 kr.Brunabótamat96.640.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 32 myndir
Upp ↑






























