fasteignasölur.is
Borgarheiði 17V
1 af 30

Um eignina

BORGARHEIÐI 17V, 810 HVERAGERÐI

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR

Snyrtilegt og vel skipulagt 5–6 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr og stórum, sólríkum garði, við Borgarheiði 17V í Hveragerði. Eignin er samtals um 113 m², þar af um 89 m² íbúðarhluti og 24 m² bílskúr.
Húsið stendur í rólegum botnlanga í rótgrónu fjölskylduhverfi, rétt við leikskóla og stutt frá skóla og helstu þjónustu. Eignin býður upp á sveigjanlegt skipulag, góða aðstöðu fyrir fjölskyldu og skemmtilega möguleika á breyttri herbergjaskipan.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR

Benedikt Ólafsson – löggiltur fasteigna- og leigumiðlari
Sími: 661 7788 | Netfang: bo@stofnfasteignasala.is

Smelltu hér til að skoða myndband um eignina

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR
  • Parhús á einni hæð með um 24 m² bílskúr.
  • Stór og sólríkur garður til suðurs og austurs.
  • Sveigjanlegt skipulag með möguleika á fjölgun svefnherbergja.
  • Þak og hlutar útveggja endurnýjuð árið 2024.
  • Rólegur botnlangi, rétt við leikskóla og stutt í skóla og þjónustu.

EIGNIN SKIPTIST Í
Forstofu, hol, svefnherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu, eldhús, sólskála og herbergi inn af honum, auk bílskúrs og garðs.

FORSTOFA OG HOL
Forstofa með glugga og fataskáp. Hol tengir saman helstu rými eignarinnar.

SVEFNHERBERGI 
Rúmgott herbergi með fataskáp.

STOFA OG BORÐSTOFA
Björt og rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu. Rýmið tengist sólskálanum og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Samkvæmt upphaflegri teikningu var eldhúsið staðsett í núverandi stofurými, sem gefur möguleika á að endurskoða skipulagið og nýta núverandi eldhús sem viðbótarsvefnherbergi, að teknu tilliti til nauðsynlegra leyfa og samþykkta.

ELDHÚS
Eldhús með viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók við glugga. Bakarofn er í vinnuhæð og spanhelluborð er í innréttingunni.

SÓLSKÁLI OG HERBERGI
Bjartur sólskáli sem nýtist sem framlenging á stofunni og býður upp á fallega tengingu við garðinn.
Inn af sólskálanum er herbergi sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi og getur einnig hentað til annarra nota eftir þörfum.

HJÓNAHERBERGI
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

BAÐHERBERGI
Baðherbergi með glugga, sturtuklefa, salerni og innréttingu með handlaug og skúffum. Flísar eru á gólfi og að hluta á veggjum.

ÞVOTTAHÚS
Sérstakt þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og stórum skápum. Yfir hluta hússins er kalt skriðloft sem hefur verið nýtt til geymslu.

GÓLFEFNI
Flísar eru á gólfum í forstofu, holi, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhúsi og hjónaherbergi. Parket er í svefnherberginu við holið og málað gólf í þvottahúsi.

GARÐUR
Stór og sólríkur garður til suðurs og austurs. Garðurinn býður upp á góða útivistaraðstöðu og möguleika til að njóta sólar og útiveru.
Á lóðinni er einnig hellulögð aðstaða sem hefur verið nýtt fyrir hjólhýsi eða húsbíl.

BÍLSKÚR
Um 24 m² upphitaður bílskúr með vinnuaðstöðu, skolvaski og rafdrifnum hurðaopnara með fjarstýringu.

NÝLEGAR ENDURBÆTUR – 2024
Í maí 2024 var ráðist í endurbætur á þaki og hluta útveggja hússins.
Þakjárn, þakpappi og flasningar voru endurnýjuð ásamt timbri þar sem þess þurfti.
Útveggur við forstofu og gluggi til vesturs voru endurnýjuð, sem og útveggur og gluggi á baðherbergi.
Einnig var endurnýjað kringum hitaklefa, lagnagrind og inntak inn í húsið, sett ný klæðning á endurnýjaða veggi og nýjar flasningar við þakskegg.

ATH. – SKIPULAG OG MÖGULEIKAR
Samkvæmt upphaflegri teikningu var eldhús staðsett í núverandi stofurými en svefnherbergi þar sem eldhúsið er í dag.
Skipulag eignarinnar býður því upp á áhugaverða möguleika á breytingum og fjölgun svefnherbergja, með fyrirvara um viðeigandi heimildir og samþykktir þar sem þeirra er þörf.

STAÐSETNING
Borgarheiði 17V er staðsett í rólegum botnlanga í rótgrónu fjölskylduhverfi í Hveragerði.
Leikskóli er rétt við eignina og stutt er í skóla, verslanir og helstu þjónustu.
Hér er um að ræða eign fyrir þá sem sækjast eftir húsnæði á einni hæð, góðum garði, bílskúr og sveigjanlegu skipulagi í fjölskylduvænu umhverfi.

ENGLISH
Single-level, 5–6 room semi-detached home in a quiet cul-de-sac in Hveragerði. Approximately 113 m², including a 24 m² garage. Sunny garden, flexible floor plan and roof and exterior improvements carried out in 2024.

POLSKI
Parterowy, 5–6-pokojowy dom w zabudowie bliźniaczej przy spokojnej, ślepej uliczce w Hveragerði. Około 113 m², w tym garaż 24 m². Słoneczny ogród, elastyczny układ pomieszczeń oraz remont dachu i części ścian zewnętrznych przeprowadzony w 2024 roku.

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR
Benedikt Ólafsson – löggiltur fasteigna- og leigumiðlari
Sími: 661 7788 | Netfang: bo@stofnfasteignasala.is

ERT ÞÚ AÐ HUGSA UM AÐ SELJA?
Okkur hjá STOFN vantar eignir af öllum stærðum og gerðum á skrá. Hafðu samband og fáðu faglega, persónulega ráðgjöf.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið
Heilindi – Dugnaður – Árangur

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Borgarheiði 17V

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð113 m²Herbergi5Svefnherb.3
61.900.000 kr.548 þ./m²

▼ Lækkað 27. október 2026 um 0,9 m.kr. · var 62.800.000 kr.

Byggingarár1975InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2209934Fasteignamat64.450.000 kr.Brunabótamat61.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑