Um eignina
Miklaborg kynnir: Fallega 2-3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og stórum lokuðum sérafnotareit í suður að Rauðavaði 13, 110 Reykjavík. Eigninni fylgir sérmerkt stæði í bílakjallara. Eignin er skráð 92,5 fm og skiptist í rúmgóða forstofu, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús og samliggjandi stofur. Frá borðstofu er útgengt á stóran afgirtan sérafnotareit/verönd. Geymsla sem mögulegt er að breyta í aukaherbergi og þvottahús eru innan íbúðar. Á jarðhæð er sameiginleg dekkjageymsla auk hjóla- og vagnageymslu. Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílakjallara. Góð staðsetning á vinsælum stað í nálægð við fallegar gönguleiðir og í göngufæri við verslanir, leik- og grunnskóla.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í flísalagða lokaða forstofu með tvöföldum fataskáp.
Þvottahús: Er á hægri hönd frá forstofu. Flísalagt gólf, gott hillupláss og vaskur. Gluggi er á þvottahúsi.
Geymsla: 5,9 fm. sérgeymsla með glugga er inn af þvottahúsi. Mögulegt er að nota geymslu sem auka svefnherbergi.
Eldhús: Er með vandaðri innréttingu með góðu skápaplássi og borðplötu úr granít. Eldhúsið er búið innbyggðri uppþvottavél, helluborði, gufugleypi og bakaraofni í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa: Stofurnar mynda bjart og fallegt opið alrými. Frá borðstofu er útgengt á stóran sólríkan sérafnotareit/verönd.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með loftháum fataskápum.
Sérafnotareitur/verönd: Er með fjallasýn til Bláfjalla og nýtur sólar bæði til suðurs og vesturs.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Einnig er sameiginlegt þvottastæði. Góð aðkoma er að húsinu og eru bílastæði fyrir gesti á sameiginlegri lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Rauðavað 13
Staðsetning
Allar 29 myndir
Upp ↑



























