fasteignasölur.is
Jörfagrund 54 M
Opið hús 31. okt. kl. 12:00–12:30
1 af 37

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja útsýnisendaíbúð með sérinngangi á efri hæð að Jörfagrund 54M, 116 Reykjavík.

Íbúðin er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi á Kjalarnesi og býður upp á rúmgóðar suðursvalir, stórkostlegt útsýni og góða nýtingu rýmis. Hún skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Birt flatarmál samkvæmt HMS er 72,7 m².

Nánari lýsing

Forstofa: Björt forstofa með parketi og fataskáp.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með parketi.
Eldhús: Falleg HTH-eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Eldhúsið er búið bakaraofni, helluborði, innbyggðum ísskáp með frysti og uppþvottavél. Lýsing er undir efri skápum og parket á gólfi. Eldhús og stofa mynda opið rými með góðri borðstofuaðstöðu.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi og góðu plássi fyrir setu- og borðstofu. Úr stofunni er gengið út á um 14 m² suðursvalir með stórkostlegu útsýni yfir Reykjavík, Reykjanes, Faxaflóa, Kjalarnes og víðar.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, speglaskáp, sturtuklefa og upphengdu salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með parketi og fataskápum á heilum vegg.
Geymsla: Góð geymsla innan íbúðar með parketi og opnanlegum glugga.

Húsið
Húsið að Jörfagrund 54 er í Grundarhverfinu á Kjalarnesi og er timburhús úr forsmiðuðum timbureiningum frá Profab í Eistlandi. Það er einangrað og klætt að utan með grárri báruklæðningu, en vínrauður viður er við innganga og milli svala.
Gluggar eru álklæddir timburgluggar með þreföldu gleri og sólarvarnargleri. Aðalinngangur er norðan megin og sérinngangar í íbúðir eru af opnum svalagangi á efri hæð. Geymslur og inntaksrými eru á neðri hæð. Gert er ráð fyrir uppsetningu rafhleðslustaura á lóð.


Staðsetning og nærumhverfi
Eignin er í rólegu, grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem náttúran er allt um kring. Í hverfinu eru leikskóli og grunnskóli. Sundlaug, líkamsræktaraðstaða og matvörubúð eru einnig í hverfinu.
Stutt er í falleg útivistarsvæði og fjölbreyttar gönguleiðir á Kjalarnesi. Hér sameinast rólegt fjölskylduumhverfi, góð nærþjónusta og falleg náttúra.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali hjá LIND fasteignasölu, í síma 822 2123 eða á netfanginu helga@fastlind.is.

Jörfagrund 54 M

116 Reykjavík · Kjalarnes
TegundFjölbýlishúsStærð72,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.824 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2519157Fasteignamat44.050.000 kr.Brunabótamat42.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑