fasteignasölur.is
Gulaþing 36
Opið hús 31. okt. kl. 12:00–12:30
1 af 37

Um eignina

Nýtt á skrá! Gulaþing 36 Kópavogi - Stórglæsileg útsýnishæð (efri hæð) með sérinngangi, 3 svefnherbergjum, bílskúr og tvennum svölum (aðrar með svalalokun).

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu glæsilega 194,4 fermetra (þar af 60,6 fermetra bílskúr) 4 herbergja efri sérhæð með sérinngangi í fallegu klasahúsi við Gulaþing 36 í Kópavogi. Um er að ræða vandaða og fallega hæð með stórkostlegu og óviðjafnanlegu útsýni til norðausturs yfir Elliðavatni og til fjalla.

Þrjú svefnherbergi og rúmgott alrými sem skiptist í annars vegar stóra stofu sem rúmar setustofu og borðstofu og hins vegar rúmgott eldhús. Útgengi úr stofu á rúmgóðar yfirbyggðar svalir til norðurs með glæsilegu útsýni. Afar fallegt eldhús með vönduðum innréttingum og stórri eldhúseyju. Innfelld lýsing er víða í íbúðinni, rúmgott baðherbergi (með sturtu og baðkari) og þvottaherbergi. 

Húsið lítur mjög vel út, álklætt og viðhaldslítið. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginleg bílastæði á lóðinni. Sérstæði fyrir framan bílskúr.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu, í lokuðum botnlanga, í góðu fjölskylduhverfi í Þingunum í Kópavogi. Leikskóli, grunnskóli, íþróttasvæði við Kórinn í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðavatn, Guðmundarlund og fleiri fallega staði. 


Nánari lýsing:
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Sérinngangur.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til norðurs með fallegu útsýni, m.a. að Elliðavatni, til fjalla og víðar. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Innfelld lýsing í loftum.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu. Stór eldhúseyja með helluborði, stál eyjuháf og góðu skápaplássi. AEG stál bakaraofn og AEG stál örbylgjuofn. Innfelld lýsing í loftum og lýsing undir efri skápum. Glæsilegt útsýni út á Elliðavatn og til fjalla. Eldhús er opið við stofu.
Svalir I: Með útgengi frá stofu/alrými. Rúmgóðar með viðarfjölum á svalagólfi og yfirbyggðar. Afar fallegt útsýni er frá svölum að Elliðavatni, til fjalla og víðar.
Baðherbergi: Er virkilega fallegt og tímalaust. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask, upphengt/innbyggt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Er rúmgott, með parketi á gólfi, miklu skápaplássi og gluggum til suðurs og austurs. Útgengi á svalir II frá hjónaherbergi.
Svalir II: Snúa til suðurs og liggja að bakgarði til suðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott og með flísum á gólfi. Góð innrétting með miklu skápaplássi ogt englar fyrir þvottavél/þurrkara (upphækkun undir), vinnuborð og vaskur. 

Bílskúr: Er 60,6 fermetrar að stærð og upphitaður. Skráning í fasteignaskrá er geymsla 25,4 fm. og bílskúr 35,2 fm. Bílskúrshurð með rafmagnsopnun og inngangshurð.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Gulaþing 36

203 Kópavogur
TegundHæðStærð194,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
128.900.000 kr.663 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2307885Fasteignamat112.800.000 kr.Brunabótamat105.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑