fasteignasölur.is
Fjölnisvegur 4 Aukaíbúð
1 af 56

Um eignina

Falleg fjögurra herbergja hæð á besta stað í Þingholtunum. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum og garður í kringum húsið er mjög stór og fallegur. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu sem fjölskyldufólk þarf á að halda.
Eigninni fylgir bílskúr sem innréttaður hefur verið sem stúdíó íbúð og er hún í leigu. Samtals er eignin 149,5 fm og þar af er bílskúrinn 28 fm. Húsið er byggt árið 1930, bílskúrinn árið 1939 og viðbyggingin sem er stofan í íbúðinni var byggð 1982.
Íbúðinni fylgir ein lítil geymsla sem stúkuð var frá bílskúr, og ein sameiginleg geymsla sem er einnig þvottahús fyrir stúdíó íbúðina. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr og þar er hleðslustöð.


Beint frá götu er sameiginlegur inngangur, þar fyrir innan er teppalögð forstofa, einnig er geymsla undir stiga sem fylgir þessari íbúð. fatahengi og skápur eru á sameign.

Íbúðin:
Hol með gegnheilu parketi út hnotu, nýlegur hljóðdúkur í lofti með innfelldri lýsingu.
Eldhús með hvítri innréttingu og gegnheilli hnotu á borðum, eldhúsið er rúmgott með góðum borðkrók og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Smeg gaseldavél og nýleg innfelld uppþvottavél.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með miklum gluggum. Hljóðdúkur í lofti með innfelldri lýsingu. Úr stofu er útgengið í garð, hellulögð verönd sem er að hluta til yfirbyggð, og þaðan er aðgengi að timburpalli.
Barnaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi, útveggir í þessu herbergi voru einangraðir upp á nýtt skipt um ofn og ofnakerfi ásamt rafmagni árið 2024.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á golfi og fatahengjum, útveggir voru einangraðir upp á nýtt árið 2024.
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar með sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi og þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, handklæðaofn í þvottahúsi og opnanlegur gluggi. Þvottahús allt tekið í gegn árið 2023.

Bílskúrnum var breytt í stúdíó íbúð árið 2024, þar er parket á gólfi, lítil eldhúsinnrétting með stein borðplötu og gott baðherbergi með rúmgóðri sturtu.

Skipt var um þak á húsin í kringum 1996. Skólpið var fóðrað árið 2013. Árið 2014 voru framkvæmdir á viðbyggingu að utan þar sem Viroc klæðning og einangrun voru endurnýjaðar og grind yfirfarin.
Árið 2023 var settur hljóðdúkur í loft í stofu ásamt innfelldri lýsingu. Árið 2024 var farið yfir glugga í húsinu og skipt um þá sem þurfti. Einnig var farið í miklar endurbætur á garðinum, skipt um jarðveg, torf lagt á um 400 fm og timburverönd við bílskúr byggð.
Skipt var um rennur og snjógildrur árið 2026.

Allar nánari upplýsingar veita
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 





 

Fjölnisvegur 4 Aukaíbúð

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundHæðStærð149,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
129.900.000 kr.869 þ./m²
Byggingarár1930InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2009105Fasteignamat109.200.000 kr.Brunabótamat67.070.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 56 myndir

Upp ↑