fasteignasölur.is
Borgartún 24 - íbúð 304
Opið hús 1. nóv. kl. 15:00–15:30
1 af 21

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega falleg og vel skipulögð 81,2 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð með bílastæði í bílakjallara í lyftuhúsi að Borgartúni 24. Um er að ræða hús sem Arnarhvoll byggði árið 2024 og er því allt nýlegt að innan sem utan. Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is


Nánari lýsing:
Komið inn í forstofu með fataskápum. Ljóst harðparket á allri íbúðinni fyrir utan flísalagt baðherbergi. Baðherbergi á vinstri hönd inn af forstofu. Upphengt salerni, handklæðaofn og falleg innrétting með spegli. Sturtuklefi lokaður af með gleri. Eldhús opið inn í stofu. Eldhúsinnrétting frá GKS með innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð og gott vinnupláss. Góð stofa með útgengi út á rúmgóðar svalir sem snúa í austur/suður. Hjónaherbergi með fjórum fataaskápum og barnaherbergi með fataskáp. Virkilega björt og falleg íbúð á þessum vinsæla stað.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara ásamt sér geymslu íbúðar sem er 8 fm að stærð. Bílastæði merkt B01 fylgir íbúðinni í bílastæðahúsi, keyrt inn frá Nóatúni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Borgartún 24 - íbúð 304

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð81,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
85.900.000 kr.1.058 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2518350Fasteignamat81.000.000 kr.Brunabótamat59.940.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑