fasteignasölur.is
Vættagil 2
Opið hús 2. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 52

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Vættagil 2

Um er að ræða góða 5 herbergja parhúsaíbúð á tveimur hæðum með bílskúr á frábærum stað í Giljahverfi. Skráð stærð skv. HMS er 161,9 fm. og þar af er bílskúr 29,2 fm. 
 
Eignin skiptist í tvær hæðir, á neðri hæð er forstofa, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús. 
 
Neðri hæð, skráð 50,8 fm.
Forstofa er björt og þar eru svartir lakkaðir fataskápar.
Svefnherbergin eru tvö og bæði með svörtum lökkuðum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og í votrými en þar er walk-in sturta, upphengt wc, lítil innrétting og handklæðaofn.
Þvottahús er með ágætri innréttingu þar sem pláss er fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er rúmgóður og þar er lakkað gólf.
Stigauppgangurinn er huggulegur og þar er teppi á gólfi.
 
Efri hæð, skráð 81,9 fm.
Svefnherbergin eru tvö og þar er parket á gólfi. Í öðru herberginu eru svartir lakkaðir fataskápar.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er baðkar, upphengt wc, handklæðaofn og lítil innrétting.
Stofa og eldhús eru í björtu og rúmgóðu alrými og þar er parket á gólfum. Úr stofu er gengið út á timburverönd til vesturs. Þar er heitur pottur.
Eldhús er með nýrri hvítri eldhúsinnréttingu. Þar er combiofn og bakaraofn í vinnuhæð. Í eldhúsi er eyja með helluborði og gufugleypi. Í eldhúsi er borðstofa sem er nokkuð rúmgóð.
 
Annað:
- Húsið málað að utan fyrir nokkrum árum
- Parket endurnýjað fyrir nokkrum árum
- Eldhús endurnýjað í byrjun árs
- Gólfhiti í eldhúshlutanum
- Pottastýring á baðherbergi efri hæðar
- Geymsluloft er yfir allri efri hæð, farið upp um fellistiga úr minna svefnherberginu
- Lóðin er stór og nær alveg til norðurs að götu, þar eru snúrustaurar og flaggstöng

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Vættagil 2

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundRað-/parhúsStærð161,9 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
112.900.000 kr.697 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2226402Fasteignamat93.700.000 kr.Brunabótamat88.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑