Um eignina
Eignin skiptist þannig:
Anddyri: Bjart og rúmgott. Flísar á gólfum. Innangengt í þvottahús.
Eldhús: Falleg innrétting í viðarlit ásamt dökkri borðplötu. Góður borðkrókur og nóg skápapláss. Vönduð eldhústæki og ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Falleg og björt stofa. Útengt út á skjólgóða verönd. Parket á gólfum.
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfum.
Baðherbergi: Veglegt baðkar og góð sturtuaðstaða. Falleg hvít innrétting. Flísar á gólfum.Handklæðaofn. Með glugga.
Herbergi (hjónaherbergi)I: Rúmgott herbergi með parket á gólfi. Gott skápapláss.
Herbergi II: Bjart og fallegt. Parket á gólfi.
Herbergi III: Bjart og fallegt. Parket á gólfi.
Herbergi IV: Bjart og fallegt. Parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott og bjart. Steypt gólf.
Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaopnari. Rúmgóður og upphitaður. Rennandi vatn.
Annað: Húsið hefur notið góðs almenns viðhalds í gegnum tíðina. Baðherbergi og eldhús hafa verið endurnýjuð á vandaðan hátt. Búið er að skipta um járn á þaki og er húsið nýlega málað að innan sem utan..Nýleg gólfefni og hurðar. Lóð er frágengin og við húsið er steypt stétt og bílastæði.
Hér er á ferð afar fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús sem endurnýjað hefur verið á smekklegan máta þar sem vandað hefur verið til verka. Frábær staðsetning með sjávarútsýni. Hér er sjón sannarlega sögu ríkari.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Neskinn 4
Staðsetning
Allar 55 myndir
Upp ↑





















































